Nýir kjarasmningar verslunar- og verkafólks undirritaðir
Helstu atriði nýrra kjarsamninga verslunar-, skrifstofu- og verkafólks:
Kjarasamningarnir gilda frá 1. apríl 2019 – 1. nóvember 2022
Krónutöluhækkanir – 17 þúsund kr. hækkun á öll mánaðarlaun 1. apríl 2019
Lægstu laun hækka mest – 30% hækkun á lægstu taxta
Aukið vinnustaðalýðræði með möguleika á verulegri styttingu vinnutímans (mestu breytingar í tæpa hálfa öld)
Eingreiðsla upp á 26 þúsund kr. sem kemur til útborgunar í byrjun maí 2019
Skilyrði sköpuð fyrir verulegri vaxtalækkun á samningstímanum
Skattbyrði hinna tekjulægstu lækkar um 10 þúsund kr. á mánuði
Almenn hækkun á mánaðarlaun fyrir fullt starf
• 1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
• 1. apríl 2020 18.000 kr.
• 1. janúar 2021 15.750 kr.
• 1. janúar 2022 17.250 kr.
Kauptaxtar hækka sérstaklega
1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
1. apríl 2020 24.000 kr.
1. janúar 2021 23.000 kr.
1. janúar 2022 26.000 kr.
Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmda launaauki að gefinni ákveðinni þróun á vergri landsframleiðslu á hvern íbúa.
Tenging við hagvöxt (hagvaxtarauki) tryggir launafólki hlutdeild í verðmætasköpuninni. Þetta ákvæði nýtist best þeim tekjulægri þar sem þessi hækkun fer af fullum þunga á taxtakaup og ¾ á önnur laun. Hagvaxtarauki getur hækkað taxtalaun um 3-13 þúsund á ári eftir því hvað verg landsframleiðsla á mann hækkar mikið á tímabilinu.
2,5% hækkun á aðra liði kjarasamninganna eins og bónusa 2020-2022.
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf
• 1. apríl 2019 317.000 kr. á mánuði
• 1. apríl 2020 335.000 kr.
• 1. janúar 2021 351.000 kr.
• 1. janúar 2022 368.000 kr
Desemberuppót (var 89.000 kr. 2018)
2019 92.000 kr.
2020 94.000 kr.
2021 96.000 kr.
2022 98.000 kr.
Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018)
• 1. maí 2019 50.000 kr.
• 1. maí 2020 51.000 kr.
• 1. maí 2021 52.000 kr.
• 1. maí 2022 53.000 kr.
Eingreiðslan kemur sem sérstakt álag á orlofsuppbót árið 2019 uppá 26.000 kr. sem greiðist eigi síðar en 2. maí 2019.
Forsendur kjarasamninganna eru eftirfarandi:
1. Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu skv. launavísitölu Hagstofu Íslands.
2. Vaxtir lækki verulega fram að endurskoðun samnings í september 2020 og haldist lágir út samningstímann.
3. Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit skv. yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna.
Forsendur kjarasamninga verða metnar í september 2020 og september 2021. Forsendurnefnd verður skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila.