Fyrrverandi sérstakur saksóknari á sviði stríðsglæpa, Carla Del Ponte, kallar eftir því að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gefi út handtökutilskipun á hendur Vladimír Pútin, forseta Rússlands.
Del Ponte er frá Sviss og vakti athygli fyrir störf sín sem saksóknari vegna þjóðarmorðanna í Rúanda og stríðsins í Júgóslavíu. Stórt og mikilvægt skref væri stigið með því að gefa út handtökutilskipun, að mati Del Ponte. Þar með væri sýnt fram á að rannsókn hefði farið fram og hægt að kalla Pútín fyrir dóm.
Pútín yrði líklega ekki handtekinn í Rússlandi, en ef slík tilskipun yrði gefin út hefði hún þær afleiðingar að Pútín gæti ekki farið út fyrir landamæri Rússlands. Gæfi það sterk skilaboð þess efnis að hann hefði allt alþjóðasamfélagið upp á móti sér.
Umræða