• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Dekrað við stóra kvótaþega og níðst á smábátasjómönnum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. maí 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Stærstu kvótaþegarnir geta falið kvóta yfir löglegu þaki í boði Kristjáns Þórs

Jónas Jónasson, frkv.stj.

Á meðan grásleppubátar eru reknir í land í mokveiði þá er stórútgerðinni gefinn kostur á að koma sér undir kvótaþakið á 6 árum samkvæmt fyrstu viðbrögðum Kristjáns Þórs þegar upp komst að stærstu útgerðirnar voru búnar að brjóta lög gagnvart hámarki í kvóta. Þegar hann var spurður út í þetta atriði
Kristján þór Júlíusson, eftir lögbrot stútgerðanna: ,,Vertu bara rólegur, það á bara eftir að breyta lögunum“

í Katljósþætti þegar upp komst að ráðuneyti hans sem ber ábyrgð á að fylgja þessum lögum hefði ekki gert það. Bað hann þáttarstjórnandann bara um að vera rólegan. ,,Vertu bara rólegur, það á bara eftir að breyta lögunum“  sagði Kristján Þór, þegar lögbrotin uppgvötuðust.
Þetta er álíka gáfulegt og dómsmálaráðherra mundi hækka leyfilegt áfengismagn í blóði eftir að vinirnir hefðu verið teknir blindfullir á bíl. ,,Verið bara róleg, það á bara eftir að breyta lögunum til að gera glæpinn löglegan,“ þannig gæti sú yfirlýsing hljóðað.

Lögbrot í skjóli ráðherra?

Ekki er öll sagan sögð því í febr­úar kynnti svo Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra ,,drög að frum­varpi um breyttar skil­grein­ingar á því hvað telj­ist tengdir aðil­ar.“ Þetta frumvarp hefur nú verið dregið til baka, þannig að ekkert verður af því að skilgreining á tengdum aðilum komi fram. Allt fyrir vinina í stórútgerðinni.
Á sama tíma sker sjávarútvegsráðherra af strandveiðimönnum 1100 tonn eða niður í 10.000.  Stjórnvöld eru ekki að vinna fyrir hinar dreifðu byggðir landsins, svo mikið er víst. Hér á Íslandi er dekrað við stóra kvótaþega sem borga til Sjáfstæðisflokksins og níðst á smábátasjómönnum á sama tíma. Er þetta eðlilegt?
Tíu stærstu útgerðir lands­ins eru með 53 pró­sent af kvótanum og innan þessa hóps eru aðilar sem eru tengdir þótt þeir séu það ekki sam­kvæmt ónýtum lögum um fisk­veið­ar sem eru hannaðar til að hilma yfir glæpnum eins og gert er fyrir opnum tjöldum og þar eru sum stærstu útgerðarfélögin sek án þess að á því sé tekið. Dekrað er við stóra kvótaþega á alla vegu og níðst á smábátasjómönnum og fjölskyldum þeirra með hreinu og beinu afkomuofbeldi. Þessu skulum við ekki gleyma eftir nokkra mánuði eða fyrr, þegar þessi viðbjóðslega óstjórn er frá.
Hér er ótrúleg grein sem ég var að lesa:

Kristján Þór Júlíusson var gerður að stjórnarformanni Samherja

https://gamli.frettatiminn.is/kristjan-thor-juliusson-var-gerdur-ad-stjornarformanni-samherja/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?