,,Já við vorum að veiða í Húseyjarkvísl og það endaði hjá okkur í tuttugu fiskum, 12 sjóbirtingar, 6 urriðar og tvær bleikjur“ sagði Sindri Þór Kristjánsson, en hann hefur verið á veiðislóðum síðustu daga og er þar ennþá, þrátt fyrir frekar kalda tíð.
,,Við erum hættir í Húsakvísl og mættir í Presthvamm og i Syðri Brú í Aðaldalnum. Það var urriðaveisla á báðum stöðum í kvöld. Þetta er bara gaman. En það voru ekki margar plús gráður í Húseyjarkvíslinni, en datt í ágæta blíðu inn á milli“ sagði Sindri enn fremur um veiðina, sem er stunduð dag eftir dag.
Við heyrum í veiðimönnum í Húseyjarkvísl í dag og veiðin gekk frekar rólega einn og einn fiskur en kalt.
Umræða