• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rauði krossinn hvetur til móttöku kvótaflóttafólks og lýsir áhyggjum af vaxandi útlendingaandúð

Rauði krossinn hvetur til móttöku kvótaflóttafólks og lýsir áhyggjum af vaxandi útlendingaandúð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. maí 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Rauði krossinn á Íslandi samþykkti tvær ályktanir á aðalfundi sínum fyrr í dag. Í annarri þeirra skorar félagið á stjórnvöld að standa við áform sín um að halda áfram að bjóða hingað kvótaflóttafólki og í hinni lýsir það áhyggjum af vaxandi andúð í garð innflytjenda og flóttafólks sem veldur aukinni spennu og skautun í íslensku samfélagi.

Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi sem fór fram á Hótel Reykjavík Grand í dag, 4. maí:

Ályktun aðalfundar um móttöku kvótaflóttafólks

Aldrei hefur jafn margt fólk lagt á flótta frá heimkynnum sínum og nú er raunin. Um 110 milljónir, manneskjur af holdi og blóði, eru í þessari hörmulegu stöðu, og af þeim er nær helmingur enn á barnsaldri.

Rauði krossinn stendur ávallt með þeim sem minnst mega sín á hverjum tíma. Félagið skorar á stjórnvöld að standa við þau áform sem fram koma í stjórnarsáttmála um að halda áfram að bjóða hingað kvótaflóttafólki, með áherslu á einstaklinga og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu, og bjóða þeim vernd og öryggi. Það er í raun ein af fáum öruggum leiðum flóttafólks í skjól.

Stjórnvöld ítrekuðu þessi áform sín með yfirlýsingu á ríkjaráðstefnu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í desember á síðasta ári og í svonefndri heildarsýn í útlendingamálum í febrúar síðastliðnum. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um móttöku kvótaflóttafólks frá árinu 2019. Rauði krossinn skorar á stjórnvöld að bregðast við.

 

Ályktun aðalfundar um hættur af vaxandi útlendingaandúð

Rauði krossinn á Íslandi lýsir áhyggjum af vaxandi andúð í garð innflytjenda og flóttafólks sem veldur aukinni spennu og skautun í íslensku samfélagi.

Samfélag okkar er að ganga í gegnum vaxtarverki þar sem íbúum með erlendan bakgrunn hefur fjölgað hratt á skömmum tíma. Slíkar breytingar taka eðlilega á.

Opinber umræða sem elur á sundurlyndi milli þjóða og þjóðfélagshópa er fyrirferðarmikil víða um heim. Rauði krossinn vinnur að opnara samfélagi þar sem fólk sýnir aðstæðum hvers annars skilning, virðir fjölbreytileika og gefur hvert öðru tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu. Við gerum þetta með því að tala fyrir mannúðargildum, mannréttindum, virkri samfélagsþátttöku og sjálfboðnu starfi. Opið, fjölbreytt og friðsælt samfélag byggir á aðkomu ólíks fólks á jafnréttisgrundvelli og það er ávallt styrkleiki fyrir samfélagið. Rauði krossinn skorar á landsmenn alla og stjórnmálafólk að standa vörð um hugsjónina um mannúð, velja orð sín gaumgæfilega, fagna fjölbreytileikanum og taka höndum saman um að byggja upp öfluga innviði og samfélag þar sem við öll njótum jafnra tækifæra.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?