Heimilt að kæra ákvörðun Matvælastofnunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
Matvælastofnun hefur veitt Háafelli ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vefsíðu stofnunarinnar þann 12. nóvember 2019 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 12. desember 2019.
Háafell sótti um stækkun á rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonnum, þar af 6.800 tonn af regnbogasilungi og 200 tonn af þorski. Fyrirtækið var áður með 2.000 tonna rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi á regnbogasilungi og þorski í Ísafjarðardjúpi. Úttekt starfsstöðva hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Háafells FE-1106 í Ísafjarðardjúpi.
Hámarkslífmassi eldisins í Ísafjarðardjúpi mun ekki fara yfir 7.000 tonn sem er í samræmi við burðarþolsmat Ísafjarðardjúps. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar. Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.
- Rekstrarleyfi Matvælastofnunar til Háafells ehf. vegna sjókvíaeldis í Ísafjarðardjúpi
- Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum
- Matsskýrsla Háafells ehf.
- Viðbót Háafells ehf. við matsskýrslu vegna valkosta
- Afstaða Matvælastofnunar til álits Skipulagsstofnunar