Vel hefur viðrað þennan daginn en sumarhitinn virðist fara misvel í fólk. Þannig barst til dæmis tilkynning um strípaling fyrir utan verslun í Kópavogi, en engan slíkan var þó að sjá þegar lögreglu bar þar að. Þá var aðila vísað úr strætisvagni sem neitaði að greiða fyrir farið og neitaði einnig að yfirgefa vagninn þegar vagnstjóri vísaði honum út.
Umferðin hefur gengið bærilega fyrir sig, en tveir voru þó kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og einn fyrir akstur sviptur ökuréttindum.
Tilkynnt var um eld í vinnuvél í Hafnarfirði. Stjórnandi vinnuvélarinnar náði að slökkva eldinn áður en viðbragðsaðila bar að garði, en hann hlaut minniháttar brunasár.
Þá var tilkynnt um harmonikkuspilara í miðborginni, sem hvorki hefði burði til að halda tón né lagi. Sendi lögregla á vettvang einn af sínum tónvísari liðsmönnum og annálaðan smekkmann, til að sannreyna hvort þessar alvarlegu ásakanir ættu við rök að styðjast. Verða gæði þess sem fyrir eyru bar ekki tíunduð hér, af gefnu tilefni.
Umræða