• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Framkvæmd fjárhagsaðstoðar endurskoðuð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. júlí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Skýrsla um framkvæmd fjárhagsaðstoðar til framfærslu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga liggur nú fyrir. Skýrslan var unnin af starfshópi sem félags- og jafnréttismálaráðherra, nú félags- og barnamálaráðherra, skipaði 14. desember 2017. Tilefnið var meðal annars að ekki var fjallað um fjárhagsaðstoð til framfærslu þegar breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga tóku gildi haustið 2018. Þá liggur fyrir að lögin verði endurskoðuð í heild sinni og er skýrslan liður í undirbúningi þeirrar endurskoðunar.
Starfshópnum var falið að kanna leiðir við framkvæmd fjárhagsaðstoðar til framfærslu sem styðja við virkni og þátttöku sem flestra með valdeflingu og notendasamráð að leiðarljósi. Þá var hópnum falið að leita leiða til að samræma viðmið vegna fjárhæðar fjárhagsaðstoðar til framfærslu, eins og kostur er, milli sveitarfélaga.
Fremst í skýrslunni eru tillögur hópsins. Þá er fjallað um rétt til aðstoðar með vísan til alþjóðasamninga, stjórnarskrár Íslands, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og niðurstaðna dómstóla. Áhersla er lögð á virkniúrræði og samspil félagsþjónustu og annarrar velferðarþjónustu. Eins er gerð grein fyrir helstu atriðum sem hópurinn aflaði frá ýmsum aðilum sem þekkja vel til virkniúrræða, endurhæfingar svo og stöðu og heilsufars þeirra sem fá greidda fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna. Í skýrslunni er einnig fjallað um framkvæmd fjárhagsaðstoðar, reglur sveitarfélaganna og dæmi tekin um vanda sem getur mætt þeim sem fara á milli kerfa.

  • Framkvæmd fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga – virkni og valdefling
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Kona handtekin fyrir líkamsárás

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Þjófur sendur úr landi

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?