Borgarísjaki 19,5 sjómílur NNA af Selsskeri
Áhöfn varskipsins TÝR mældi borgarísjaka sem var 19,5 sjómílur ( sem eru 35 km.) NNA af Selsskeri. Ísjakinn er ferðlaus og því líklega strandaður á stað 66°26,7‘N – 21°21,7‘V.
Ísjakinn getur verið hættulegur sjófarendum en sést vel í ratsjá.
Kolbeinn Guðmundsson, Yfirsýrimaður á varðskipinu sendi okkur þessar myndir en Týr var staddur á þessum slóðum í dag. Stærð borgarísjakans var mæld með sextant 315m langur, 70m breiður og 44m á hæð.
Mynd 1. Thorben J. Lund skipherra mælir stærð ísjakans með sextant
Mynd 2. Borgarísjakinn. Ljósmyndari Guðmundur St. Valdimarsson
Umræða