• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eldsneytis­verð hríð­lækk­ar

Verð á eldsneyti hefur verið í frjálsu falli á heimsmarkaði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. ágúst 2022
in Erlent, Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Verð á olíu og bensíni hefur lækkað verulega frá júníbyrjun. Smásöluverð á eldsneyti hækkaði um rúm 30% frá ársbyrjun til júlíloka. Möguleg lækkun eldsneytisverðs á komandi mánuðum gæti slegið á verðbólguþrýsting á næstunni. Þetta kemur fram í frétt Íslandsbanka um verð og verðlagshorfur á eldsneyti.

Verð á hráolíu og tengdum afurðum hefur lækkað skarpt síðustu vikur á heimsmarkaði eftir mikla hækkun á fyrri hluta ársins. Frá mánaðamótum hefur verð á Brent-hráolíutunnunni lækkað um nærri 12% og frá júníbyrjun er lækkunin ríflega 20%. Verðið á hráolíu er nú u.þ.b. 97 Bandaríkjadollarar á hverja tunnu og þar með svipað og það var rétt áður en innrás Rússa í Úkraínu leiddi til skarprar verðhækkunar í lok febrúar. Nýjasta lækkunarhrinan er að sögn erlendra miðla drifin af þremur þáttum:

  • Nýleg gögn frá Bandaríkjunum leiða í ljós rýmri birgðastöðu þar í landi en talið var.
  • Horfur um hagvöxt á heimsvísu hafa dökknað talsvert undanfarið og þar með hafa væntingar um vöxt spurnar eftir hráolíu og afleiddum afurðum minnkað.
  • OPEC+ verðsamráðshópurinn ákvað að bæta lítillega í framboð aðildarríkjanna

Þótt miklar sveiflur hafi verið í verði hráolíu hefur þó verð á ýmsum afurðum unnum úr henni sveiflast enn meira. Þetta á bæði við um bensín og dísilolíu sem hækkuðu gríðarlega í verði í vor þegar flöskuhálsar í framleiðslu á slíku eldsneyti bættust ofan á hækkandi aðfangakostnað. Má þar nefna að viðmiðunarverð á blýlausu bensíni á Evrópumarkaði hækkaði um nærri 60% frá miðjum febrúar fram til júníbyrjunar. Líkt og hráolíuverðið hefur verð á bensíni og dísil hins vegar lækkað skarpt frá miðjum júní og nemur lækkunin á ofangreindu bensíni rúmum þriðjungi í dollurum talið.

Íslendingar hafa ekki farið varhluta af framangreindum hækkunum á jarðefnaeldsneyti undanfarna mánuði. Það sem af er ári hefur smásöluverð á eldsneyti hækkað um rúm 30% samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar. Hafa ber í huga að talsverður hluti eldsneytisverðs á íslenskum dælum endurspeglar opinber krónugjöld sem ekki breytast með hækkandi innkaupsverði. Á móti þarf að halda því til haga að frá áramótum til júlíloka hækkaði gengi Bandaríkjadollarans um tæp 4% gagnvart íslensku krónunni.

Spár sérfræðinga á hrávörumarkaði hljóða upp á nokkra lækkun hráolíuverðs á heimsmarkaði á komandi misserum frá því verði sem ríkti á fyrri helmingi þessa árs. Óvissa er vitaskuld mikil í þessum spám eftir örar sveiflur síðustu mánuði en þær styðja þó við væntingar okkar um að verð á eldsneyti muni á endanum verða lægra hér á landi en það hefur verið síðustu mánuðina.

Ef verð á hráolíu og tengdum afurðum hækkar ekki að ráði á nýjan leik, að ekki sé talað um ef það lækkar frekar, teljum við líklegt að eldsneytisverð til íslenskra neytenda lækki á endanum nokkuð. Eldsneytisverð í smásölu skýrði 1,2 prósentur af 9,9% verðbólgu í júlímánuði samkvæmt Hagstofunni og þar á ofan hefur eldsneytisverð áhrif á fjölmarga aðra undirliði vísitölu neysluverðs, allt frá flugfargjöldum til verðs á innfluttum matvælum. því gæti munað nokkru fyrir verðbólguhorfur á seinni helmingi ársins ef verðið lækkar að nýju nær því sem var áður en stríðið í Úkraínu braust út. Ekki veitir af, myndu ýmsir segja.

Umræða
Share30Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    170 deilingar
    Share 68 Tweet 43
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Líkfundur

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?