• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 6. ágúst 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

LÝÐVELDIÐ ÍSLAND AFHENT BRUSSEL

LÝÐVELDIÐ ÍSLAND AFHENT BRUSSEL

Hallur Hallsson skrifar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. ágúst 2025
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Inga sælent og Heimur smár …

Flokkur fólksins var sagður standa fastur á fullveldi Íslands gegn aðild að ESB í Brussel. Það var fyrir kosningar 31. nóvember 2024. Þá var öldin önnur þegar Inga Sæland endurómaði raddir alþýðufólks. Í febrúar 2025 réð Inga Sæland gamlan komma úr villta vinstrinu, esb-lepp og framkvæmdastjóra Samfylkingar til að styrkja tengslin á stjórnarheimilinu.

Heimir Már Pétursson með kolsvarta fortíð sem margir fréttamenn þekkja. Flokkur fólksins er sem gömul minning, Inga sallaróleg og þögul. Nú er Inga sælent á sviðinu. Klárinn er sleginn til Brussel, landið opnað bakdyramegin. Slóðin hulin, wóktaktur sleginn og kórinn rammfalskur. Stefnir hátt á þriðja þúsund manns í ár í nafni hælisverndar og fjölskyldusameiningar. Í nafni fjölskyldusameiningar hafa 486 múslimar komið fyrstu sex mánuðina á bak við fólkið í landinu.

HEIMUR SMÁR Á STÓRA SVIÐINU

Hallur Hallsson blaðamaður skrifar

Heimur Smár var ekki fyrr mættur á stóra sviðið en fyrrum kollegar í blaðamannastétt voru orðnir “…eiturpennar án siðgæðis.“ Doddi byrlari og Heimur Smár skipuðu stjórnarflokknum að tala ekki við Moggahyskið. Svona er nú íslensk pólitík gagnsæ. Evrópa er málið. Allt varð að vera tilbúið þegar Frau Leyen kæmi til Íslands. Forgangsmál að afhenda Ísland milli fjalls og fjöru ásamt sjávarauðlindinni: hálendið, árnar, heita vatnið og fiskimiðin. Franskir, breskir, belgískir, portúgalskir og spánskir togarar til Íslandsveiða á nýrri öld. Orkulindir vafðar inn í orkupakka með sæstrengi til Evrópu.

LÝÐVELDIÐ ÍSLAND AFHENT BRUSSEL

Það var próblem. Stjórnarandstaðan þvældist fyrir með málþófi á Alþingi og mikill var taugatitringur. Þegar formaður þingflokks XD sleit þingfundi 10. júlí kl. 23:39 varð mikill hvellur. Þingmenn og ráðherrar þustu ofsareiðir í pontu. Menntamálaráðerra XF hrópaði “…valdarán.“ Inga benti á að slíkt hyski í útlöndum sé “…dregið undir húsvegg og skotið.“ Kristrún Frostadóttir kvaðst vera að: “…verja lýðveldið Ísland.“ Slík var neyðin. Sjálft kjarnorkuákvæðið virkjað; 71. grein þingskaparlaga sem ekki hafði verið beitt í 66 ár.

Heimur Smár við öllu búinn hafði fengið álit skrifstofu Alþingis á kjarnorkuákvæðinu strax 7. maí. Ragnar Þór ferskur með sína 10milljóna eingreiðslu huldi slóð gamla fréttaskúrksins ásamt prófessorum HÍ. Mikið lá við. Frau Leyen var á leiðinni og uppnám á Alþingi. Kjarnorkuákvæðið sprakk 11. júlí. Alþingi slitið 12. júlí. Mikill fögnuður greip um sig meðal stjórnarliða; high five, sungið og dansað. Slegið var upp partý og stelpurnar sungu eins og fjöllyndar druslur: “Do not say I can not go with other boys.“

HEIMUR SMÁR GJÖFIN SEM BÖRNIN ERFA

Frau Leyen mætti 16. júlí. Kristrún fór með hana upp á fjallstind til að sýna lýðveldið Ísland til afhendingar; Allt þetta er þitt. Mikil var hamingjan. Meðan þjóðin var í sumarfríi var lætt í samráðsgátt frumvarpi No. 114/2025 sem kveður á um nauðungarvinnu allra 18-65 ára með herskyldu undir yfirskini almannavarna. Nútíma vistabann af því stríðið er á leiðinni. Þetta og meira til gat Kristrún tilkynnt Frau Leyen á fjallstindinum. Inga sælent pollróleg, takk fyrir og HEIMUR SMÁR bíður Íslendinga, herskylda á evrópskum vígvöllum “…gjöfin sem börnin erfa.“

Umræða
Share6Tweet4
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tilkynnt um ísbjarnarspor

    Ísbjörn á ísjaka út af Straumnesi – myndband var tekið

    88 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • ,,Ætla nú að reyna að stela 180 milljóna fasteign – Féflettu þrjá tengdasyni“

    1359 deilingar
    Share 544 Tweet 340
  • Hvítabjörn: Lögreglan flaug yfir Hornstrandir

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
  • Hryðjuverkaógn – Reyndir lögreglumenn hafa haft samband

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Rústaði hjónabandinu, missti forræðið og reyndi sjálfsvíg

    159 deilingar
    Share 83 Tweet 32
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?