Eyjar.net greindu frá því að HS-Veitur hafi hækkað mælaleigu um 150%. Þar kemur fram að bæjarbúum hafi blöskrað gríðarleg hækkun á mælaleigu fyrir kaldavatnsmæla HS-Veitna. Samkvæmt seinustu reikningum frá HS veitum hefur gjaldið fyrir kaldavatnsmælana hækkað á milli mánaða um 150%.
,,Gjaldið fer úr tæpum 15,75- kr. pr. dag í 39,25- kr. sem gerir mánaðarlega, miðað við 30 daga, hækkun úr um 470.- kr. í 1.177.- kr.. Eyjar.net setti sig í samband við fulltrúa HS-Veitna vegna málsins. „Jú, ársleigan er 14.600 kr. pr/mæli og fyrir mánuðinn eru það að jafnaði rúmar 1.200 kr.” segir Sigurjón Ingi Ingólfsson, innheimtustjóri HS-Veitna. „Ég held að það sé örugglega rétt hjá mér að mælaleigan hafi verið hækkuð til samræmis við mælaleiguna á Suðurnesjum. Býst við að verðlagið taki eitthvað mið af dýrum snjallmælum sem verið er að setja upp þessa dagana.” segir Sigurjón að lokum.
Má benda á að þó mælarnir séu dýrari en þeir eldri, þá má leiða að því líkum að töluverður sparnaður hljótist af því að þurfa ekki að senda aflesara inn í hvert hús eins og tíðkast hefur hingað til, heldur er ekið framhjá húsunum og lesið þannig af. Spurningin er hvort sá sparnaður skili sér til neytenda í þessu tilviki, eða hvort einungis sé horft á kostnaðinn við mælana?“ Segir í fréttinni.