Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að bifreið sem hann var í hafnaði utan vegar við Heydalsveg á öðrum tímanum í nótt. Í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi kemur fram að bíllinn hafnaði ofan í á. Vegfarendum sem að komu tókst að ná manninum og konu sem einnig var í bílnum út, en endurlífgunartilraunir á manninum báru ekki árangur.
Konan var orðin mjög köld en með meðvitund og líklega ekki mikið slösuð. Hún var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Akranesi. Lögreglan á Vesturlandi rannsakar slysið. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kom og aðstoðaði við vettvangsrannsókn. Fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa kom einnig á vettvang.
Umræða