Stjórn Birtu að loknum ársfundi lífeyrissjóðsins þann 22. apríl 2025 var þannig skipuð, að Þóra Eggertsdóttir var kjörin stjórnarformaður og Hrönn Jónsdóttir, varaformaður.
Þóra er fjármálastjóri hjá Icelandia og situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd atvinnurekenda. Þær Þóra og Hrönn skipta þar með um hlutverk en Hrönn var stjórnarformaður áður og Þóra varaformaður.
Birta lífeyrissjóður er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsmanna ef miðað er við hreina eign til greiðslu lífeyris.
Var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, og sat í stjórn eins af stærstu hluthöfum flugfélagsins, lífeyrissjóðsins Birtu
Fréttavefurinn Mannlíf vakti athygli á málinu þann 15. nóvember, 2022 undir fyrirsögninni ,,Fjármálastjóri Play sakaður um spillingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“ Þar segir jafnframt:
,,Þóra Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, situr í stjórn eins af stærstu hluthöfum flugfélagsins, lífeyrissjóðsins Birtu. Sjóðurinn sker sig úr hvað varðar íslenska lífeyrissjóði þegar kemur að því að fjárfesta í Play og hefur stjórnin nú þegar samþykkt að leggja meira fé til félagsins.
Samkvæmt Samstöðinni er Birta einn af stærstu hluthöfunum í Play með 8,5 prósenta eignarhlut, sem kostaði sjóðinn um milljarð króna. Þar á eftir kemur Lífsverk með 4,3 prósent en aðrir lífeyrisjóðir eru allir undir 1,2 prósenta eignarhlut í flugfélaginu.
Þóra fjármálastjóri var áður yfir innanlandsflugi Icelandair. Nú er orðið ljóst að rekstur Play hefur ekki gengið sem skyldi og verið langt undir væntingum. Nauðsynlegt er að sækja meira fé í reksturinn og þar mun Birta mögulega gegna lykilhlutverki. Forsprakki Sósíalistaflokksins, Gunnar Smári Egilsson, gagnrýnir harðlega að fjármálastjóri Play sitji í stjórn Birtu sem „dæli fé inn í flugfélagið“. Segir í frétt Mannlífs.
Þóra hættir sem fjármálastjóri Play
Í viðskiptablaðinu þann 7. október 2022 tilkynnti Þóra Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálsviðs Play, að hún hafi sagt starfi sínu lausu:
,,Þóra Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálsviðs Play, hefur sagt starfi sínu lausu. Hún hefur starfað hjá flugfélaginu síðan í maí 2021 og leiddi skráningu félagsins á First North-markaðinn.
„Þóra mun sinna stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs þar til eftirmaður hennar tekur við en tilkynningar þess efnis er að vænta bráðlega,“ segir í tilkynningu Play til Kauphallarinnar.
Þóra hefur starfað í fluggeiranum frá árinu 2017. Áður en hún hóf störf hjá Play gegndi hún stöðu forstöðumanns innanlandsflugs hjá Icelandair og var þar áður fjármálastjóri Air Iceland Connect. Þá var Þóra forstöðumaður áhættu- og fjárstýringar hjá Landsneti á árunum 2012-2017.
Þóra Eggertsdóttir:
„Ég er stolt af því að hafa fengið tækifæri til að vinna fyrir Play sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs á þeim tíma er félagið var í uppbyggingarfasa. Stoltust er ég af fjármálateyminu sem við höfum byggt upp síðustu misseri og mun sannarlega sakna samstarfsfólksins. Ég hef ákveðið að breyta til og skipta um takt og ákvað að segja skilið við félagið. Ég óska Play alls hins besta og hlakka til að fylgjast með úr örlítið meiri fjarlægð.“
Birgir Jónsson, forstjóri Play:
„Þóra hefur verið öflug og góð samstarfskona á því mikla uppbyggingartímabili sem Play hefur verið í síðasta eina og hálfa árið. Hún hefur byggt upp gríðarlega öflugt og flott teymi með sér og lagt grunn sem við munum byggja á í framtíðinni. Ég þakka Þóru innilega fyrir gott og faglegt samstarf og hennar mikilvæga framlag um leið og ég óska henni velfarnaðar í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur í næsta kafla.” Segir í tilkynningu í Viðskiptablaðinu.