• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Frávísunarkröfu Tryggingastofnunar ríkisins í "Krónu á móti krónu" máli hafnað

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað algerlega frávísunarkröfu Tryggingastofnunar ríkisins, í máli Öryrkjabandalagsins gegn stofnuninni, og tekið málið til efnislegrar meðferðar. Málareksturinn hefur nú tafist um ár vegna þessarar kröfu TR, og sífelldra fresta sem ríkislögmaður fór fram á.

Í úrskurði sínum segir héraðsdómur að með aðalkröfu sinni leitist stefnandi við að knýja á um greiðslu vangreiddra bóta sem stefnandi telur sig eiga rétt á, þar sem gildandi ákvæði laga og reglugerðar á tímabili dómkröfu, um skerðingu sérstakrar uppbótar til framfærslu vegna tekna, króna á móti krónu, hafi strítt gegn stjórnarskrá, einkum jafnræðisreglu hennar. Öryrkjabandalagið hefur aðallega uppi viðurkenningakröfu fyrir hönd öroku- og endurhæfingalífeyrisþega sem stefnir að sama markmiði og aðalkrafa stefnanda og er byggð á sömu málsástæðum.
Athugasemdir TR lutu einkum að því að kröfugerð stefnenda í heild sinni hafi ekki verið dómtæk, þar sem hún sé miðuð við réttindi sem engin stoð sé fyrir í settum lögum. Sérstök uppbót til framfærslu sé reiknuð út með öðrum hætti og á öðrum forsendum en sameinaður ellilífeyrir. Þar af leiðandi fái ekki staðist að styðja stefnukröfur málsins við lækkunarhlutfall og frítekjumörk annar hóps lífeyrisþega.
Í niðurstöðu dómara segir að í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefur verið gengið út frá því um langt skeið að dómstólar séu til þess bærir að líta framhjá og víkja þannig til hliðar ákvæðim laga sem stríða gegn stjórnarskránni. Ekki verði séð að með dómkröfum stefnenda sé dómstól ætlað að fara inn á svið framkvæmdavaldsins, enda sýnist ágreiningurinn fyrst og fremst snúast um lögbundin réttindi, en ekki svið þar sem stjórnvöldum er eftirlátið mat.
Að þessu gættu eru ekki efni til þess að vísa aðalkröfum stefnenda frá dómi vegna fyrirmæla 2. gr. stjórnarskrárinna, og verður að telja sakarefnið heyra undir dómstóla. Þá verði ekki séð að aðalkröfur stefnenda séu svo vanreifaðar að frávísun þeirra varði.
Svo segir að aðrar athugasemdir TR sem færðar hafa verið fram við málatilbúnað stefnenda virðast að mestu varða efni máls, en leiða ekki til frávísunar. Samkvæmt því verður frávísunarkröfu TR alfarið hafnað og málið tekið til efnismeðferðar.
Gera má ráð fyrir að lokafyrirtaka málsins fyrir héraðsdómi verði í byrjun desember. Dómur fellur þá ekki fyrr en öðru hvoru megin áramóta.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Frost um allt land

    0 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Lögreglan lýsir eftir Gabríel Douane Boama, 20 ára,

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?