Helsta breytingin á fylgi flokka frá síðustu mælingu er sú að fylgi Vinstri grænna minnkar en um 12% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,4-1,1 prósentustig samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup .
Tæplega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 16% Samfylkinguna, liðlega 12% Pírata, tæplega 12% Viðreisn, hartnær 10% Miðflokkinn, nánast 8% Framsóknarflokkinn, tæplega 5% Flokk fólksins og næstum 3% Sósíalistaflokkinn.
Ríflega 11% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Nær 57% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.
- Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?
Umræða