Skotið var með haglabyssu á dróna sem eftirlitsmaður Fiskistofu notaðist við er hann sinnti eftirliti í gær
Fiskistofa njósnar um skipverja, báta og skipa með drónum og hefur sú háttsemi farið mjög illa í sjómenn sem hafa kvartað yfir því að slík háttsemi geti varla staðist persónuverndarlög. Þeir segja að freklega sé ráðist að þeirra persónulega rými og valdi þeim óþægindum. Ekki er vitað um slíka njósnastarfsemi gegn neinni annari atvinnustétt á Íslandi.
Skaut þremur skotum að drónanum frá skipinu
Þegar skipverjar tóku eftir dróna Fiskistofu sveimandi yfir höfði sér, fór einn þeirra inn í stýrishús skipsins og greip þar til skotvopns og skaut þremur skotum að drónanum frá skipinu. Eftirlitsmaður Fiskistofu kveikti á upptöku eftir að skoti hafði verið hleypt af og náði verknaðinum á myndband.
Atvikið var tilkynnt til lögreglu sem tók á móti skipinu við löndun og var Fiskistofa í sambandi við Landhelgisgæsluna sem brást hratt og vel við. Landhelgisgæslan hafði einnig samband við lögreglu og tók rannsóknarlögreglumaður skýrslur á vettvangi.
Fiskistofa lítur atvikið mjög alvarlegum augum og metur það sem mikla ógn við störf og öryggi eftirlitsmanna.
Að skjóta úr skotvopni að dróna Fiskistofu getur fallið undir brot gegn valdstjórninni samkvæmt 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga auk brota á vopnalögum. Með þessari háttsemi var eftirlitsmaður Fiskistofu hindraður við framkvæmd skyldustarfa sinna með alvarlegri og ógnandi verknaðaraðferð. Fiskistofa kemur til með að fylgja málinu eftir með kæru á hendur skipverjunum til lögreglu.

