Fjögurra ára gamalt barn fannst nakið og grátandi inni á klósetti í Småland sem er leiksvæði fyrir þriggja til sjö ára gömul börn í IKEA, í gær.
Sigurlaug Alexandra Þórsdóttir, móðir barnsins, greindi frá atvikinu í Facebook-hópnum Mæðra tips. Hún segist hafa skilið dóttur sína eftir á leiksvæðinu í klukkutíma og þegar hún hafi ætlað að ná í hana aftur hafi hún ekki fundist.
„Ég fæ að koma þarna inn fyrir og þá segir einn strákurinn sem er að vinna þarna: „Hún er fundin, hún er bara inni á baði.“ Þá kem ég að henni þar allsber, búin að klæða sig úr öllum fötunum, situr uppi á klósetti og er hágrátandi. Þá hafði hún sem sagt verið búin að pissa á sig.“
Sigurlaug segir greinilegt að dóttir hennar hafi verið þarna í einhvern tíma því hún hafi verið útgrátin, eldrauð í framan og með ekka. Hún segir að sér hafi brugðið og spurt starfsfólkið hvort enginn hafi verið að fylgjast með. Þau sögðust ekki hafa vitað af barninu inni á klósetti.
Hún bendir á að aðeins tveir starfsmenn hafi verið að vinna þegar þetta gerðist en sextán börn hafi verið í Smålandi. Annar starfsmaðurinn hafi í þokkabót verið að vinna í afgreiðslunni, ekki að gæta barnanna.
„Það virtist vera bara að starfsmaðurinn þarna hafi enga hugmynd um hana þarna inni, búin að vera hágrátandi. Þetta var náttúrulega bara mjög vont í mömmuhjartað.“
Sigurlaug segist hafa sent IKEA tölvupóst en ekki fengið svar. Færsla hennar á Mæðra tips hafi þó vakið athygli og deildu nokkrir svipaðri reynslu. Sigurlaug segir greinilegt að það vanti eitthvað upp á starfsemina í Smålandi. Verði ekkert að gert sé ekki langt í að það komi eitthvað fyrir.