Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mælinga, eða á bilinu 0,1-0,5 prósentustig. Tæplega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú, 17% Samfylkinguna, nær 12% Pírata, svipað hlutfall Vinstri græn, 10% Viðreisn, liðlega 9% Miðflokkinn, rúmlega 8% Framsóknarflokkinn, rösklega 4% Flokk fólksins og næstum 4% Sósíalistaflokkinn.
Nær 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rúmlega 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Nær 58% þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.
Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?