Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Gyðu Hjartardóttur til að skila þrotabúi Karls Emils Wernerssonar tveimur almennum hlutum í félaginu Nordic Pharma Investement Ltd (NPI) sem stofnað var á Bresku Jómfrúareyjum árið 2012.
Þá var henni einnig gert að greiða þrotabúinu tæplega 7,5 milljónir króna í málskostnað að viðlögðum dagsektum upp á 2 milljónir króna sem falla til 30 dögum eftir uppkvaðningu dómsins. Ríkisútvarpið fjallaði ítarlega um dóminn og þar segir m.a.:
Að ,,í dóminum var einnig samkomulagi Gyðu við Karl Emil Wernersson rift en hann hafði framselt henni félagið þann 27. mars 2018 án endurgjalds. Fram kemur að Karl Emil lét skiptastjóra þrotabús síns ekki vita af framsali hans á félaginu til Gyðu.
Skiptastjóri telur að skuldabréfaeign NPI nemi um 527 milljónum króna.
Málið kom fram þegar Gyða gerði tilkall í þrotabú Háttar ehf. fyrir hönd NPI upp á 3,8 milljónir króna. Þegar skiptastjóri fékk veður af þessu mótmælti hann því og taldi þrotabú Karls Emils eiga rétt á greiðslunni. Þrotabúið og Gyða gerðu með sér samkomulag um að hún fengi þó greiðsluna á þeirri forsendu að NPI væri eignalaust félag. Því samkomulagi hefur þó verið rift þar sem í ljós hefur komið að félagið situr á talsverðum eignum.“
Áður hafði Héraðsdómur Reykjaness dæmt Jón Hilmar Karlsson Wernerssonar til að greiða þrotabúi Karls föður síns 464,5 milljónir króna með dráttarvöxtum vegna sölu á Toska ehf., móðurfélagi Lyfs og heilsu og Hljóðfærahússins. Sonurinn keypti félagið af Karli Wernerssyni á um eina milljón króna þegar Karl stóð í milljarða dómsmálum, sem síðar leiddu til gjaldþrots hans. Lyf og heilsa er eitt stærsta apótek landsins og velta félagsins var um sex milljarðar á ári þegar viðskiptin gengu í gegn.