HEIÐRÚN og SFS ættu fyrst og fremst að fara að segja satt og rétt frá þegar þau bera sig eins og fátækasta fólk landsins og gera allt til að greiða sem minnst til samfélagsins ef þau vilja vera tekin trúanleg.
Í fyrsta lagi hefur ekki tekist að byggja upp neina fiskistofna á Íslandi síðan kerfið kom á 1984. Margir fiskistofnar hér eru útdauðir og má þar nefna t.d humarveiðar sem eru aflagðar með öllu vegna þess að humarstofninn hrundi í þessu góða kerfi. Hausnum er stungið í sandinn þegar rannsakað er út af hverju Sama má segja um fleiri tegundir sem eru farnar eða svo gott sem að verða útdauðar.
Þetta kallar Heiðrún sjálfbærni!
Í öðru lagi þá eru Strandveiðar ekki óarðbærar. Hæsta verð fyrir fisk veiddan og seldan á fiskmörkuðum á Íslandi er greitt fyrir strandveiðiaflann. Það eru staðreyndir sem hver sem er má reyna að sannreyna.
Gjöldin sem strandveiðimenn greiða til samfélagsins eru miðuð við fullt markaðsverð því strandveiðimenn landa á opinn fiskmarkað og er því stofninn sem ríkið og sveitarfélög nota til að leggja á gjöld strandveiðiafla réttur en rangur af svokölluðu verðlagstofuverði sem er oftast um 30-40 prósent lægri verð en á fiskmörkuðum.
Verðlagstofuverð er ekkert annað en skattaafsláttur til útgerða og niðurfærsla launa sjómanna
Flestir aðilar innan SFS nýta sér einmitt að gera upp á verðlagstofuverði sem er ekkert annað en skattaafsláttur til útgerða og niðurfærsla launa sjómanna og þar af leiðandi mynni launakostnaður útgerða. Þessa skekkju þarf að laga og hér er verið að tala um tugi milljarða skattstofn sem ríki og sveitarfélög verða af…. Þess má geta að mjög margir innan SFS nýta sér verðlagstofuverð í sýnum uppgjörum.
Svona er nú það og kannski ætti Heiðrún að segja satt og rétt frá.
Fiskveiðistjórnunarkerfið er eign þjóðarinnar og hvorki SFS né einstakir stjórnmálaflokkar eða leikmenn innan þess eiga meira í þessu kerfi en aðrir. Kerfið á fyrst og fremst að þjóna eigendum sínum sem er íslenska þjóðin….
Átta mánaða leyfi til strandveiðibáta og 10.000 tonn af þorski að auki – Ufsi ofl. utan kvóta
Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar – Vísir