• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Mikil óánægja er á meðal Pírata vegna uppátækis á Alþingi í dag – Varaforseti Alþingis, átaldi framgönguna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. febrúar 2019
in Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent
A A
0

Á vef Pírata á Facebook, Pírataspjallinu, er mikil ólga vegna uppátækis Björns Leví Gunnarssonar og Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur sem að stóðu örskamma stund sitt hvoru megin við Bergþór Ólason er hann var í pontu á Alþingi í dag. Þingmenn Pírata settu á sig húfur merktar FO (Fokk ofbeldi) og stilltu sér upp við hlið Bergþórs, þingmanns Miðflokksins, þegar hann hélt ræðu í umræðum um samgönguáætlun.
Vefur Pírata á Facebook hefur logað í illdeilum vegna atviksins og fordæma margir aðförina að Bergþóri og kalla hana einelti í garð pólitísks andstæðings á meðan aðrir réttlæta verknaðinn. Ljóst er að Píratar eru klofnir í afstöðu sinni og mikil óánægja og óeining er innan raða þeirra vegna málsins. Þá má geta þess að varaforseti Alþingis, átaldi framgöngu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og Björns Leví Gunnarssonar, þingmanna Pírata.
Spjallið byrjar á fyrirsögninni: Er einelti ekki einmitt ofbeldi? M.a. er því haldið fram innan raða flokksins, á pírataspjallinu að Píratarnir tveir hefðu þarna beitt pólitískan andstæðing sinn eineltisofbeldi og hræsni, vegna þess að þau hafi sjálf verið að mótmæla með einelti og ofbeldi. Rifrildi er á meðal fólks á pírataspjallinu og allt látið fjúka, eins og t.d.: ,, Hvaða fífl eru með húfurnar ..afsakið munnsöfnuðinn..“ ,,Býst þá við að feministar verði látnir gjalda fyrir sitt ofbeldi bráðum líka,“ og svo er rætt um femínisma og einelti ofl. ofbeldi og sitt sýnist hverjum en nóg er af köldum kveðjum innan hópsins og orðaskakið stóð enn yfir er heimildarmaður yfirgaf spjallið.
Þá er á öðrum spjallþræði rifjað upp að þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarssona vék grátandi úr pontu eftir að hafa rifjað upp það einelti sem að hann sjálfur varð fyrir, fyrir áratugum, og því væri stórundarlegt að sjá hann standa þarna við annan mann stunda einelti frammi fyrir alþjóð.
RÚV skýrir frá því að Bryndís Haraldsdóttir, varaforseti Alþingis, átaldi framgöngu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og Björns Leví Gunnarssonar, þingmanna Pírata, á Alþingi í dag.

 „Forseti vill átelja framkomu háttvirtra þingmanna Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og Björns Levís Gunnarssonar við upphaf ræðu háttvirts þingmanns Bergþórs Ólasonar,“ sagði Bryndís.

,,Bryndís vísaði til orða forseta Alþingis árið 2012 þegar tveir þingmenn gengu framhjá ræðustól Alþingis með blöð sem á stóð málþóf. Það voru þeir Björn Valur Gíslason, Vinstri grænum, og Lúðvík Geirsson, Samfylkingunni. Í ræðustól var Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokki. Þetta gerðist í umræðu um fjárlög og olli uppnámi á þingi. Bryndís vísaði til orða þáverandi forseta Alþingis sem sagði að atvik af þessu tagi væru ekki við hæfi og að á Alþingi tjáðu menn sig úr ræðustóli.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?