Óháð ráðgjöf fyrir heimilin í efnahagskreppu
Hagsmunasamtök heimilanna hafa hlotið myndarlegan styrk frá félags-og barnamálaráðherra til að aðstoða heimili í vanda vegna Covid-19. Hagsmunasamtökin hafa starfað í 12 ár og hafa allan þann tíma veitt heimilum óháða ráðgjöf um stöðu þeirra á fjármálamarkaði, þá einu sem í boði er hér á landi. Hjá samtökunum hefur safnast upp gríðarleg þekking á málefnum neytenda á fjármálamarkaði og réttindum þeirra sem eru því miður ekki alltaf virt af fjármálafyrirtækjum þar sem neytendur standa oft höllum fæti.
Hagsmunasamtökin hafa ítrekað leitað eftir stuðningi opinberra aðila til að veita neytendum óháða ráðgjöf í þeim frumskógi sem lánamarkaðir, lánakjör og lánsform eru á Íslandi. Samtökin telja það tímaskekkju að á 21. öldinni séu lántakendur háðir lánveitendum um ráðgjöf í þessum stærstu fjárfestingum hvers heimilis enda fara hagsmunir þessara aðila ekki alltaf saman.
Sem sjálfboðaliðasamtök rekin að mestu fyrir valkvæð félagsgjöld hafa Hagsmunasamtökin orðið að sníða sér stakk eftir vexti og ekki getað auglýst þjónustu sína sem skildi. Núna eru breyttir tímar því í janúar veitti félags-og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, samtökunum myndarlegan styrk sem gerir þeim kleift að auka við ráðgjöf sína og þjónustu.
Á þessum tímum heimsfaraldurs þar sem margir standa frammi fyrir tekjufalli og greiðsluerfiðleikum vilja samtökin leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim sem þurfa á aðstoð að halda, enda hafa samtökin allt frá því faraldurinn hófst sett málefni tengd afleiðingum hans á oddinn.
Fram kemur í samningi um styrkinn að verkefnið sé tvíþætt. Í fyrsta lagi snýr það að hagsmunagæslu lántakenda (heimilanna) í efnahagskreppu og í öðru lagi að átaki í lögfræðilegri ráðgjöf og stuðningi við félagsmenn í greiðsluerfiðleikum.
Við hvetjum alla þá sem óska eftir ráðleggingum eða aðstoð til að að átta sig á stöðu sinna mála til að hafa samband við okkur í gegnum netfangið adstod@heimilin.is sem allra fyrst og láta nafn og símanúmer fylgja með. Við munum hafa samband við fyrsta tækifæri.
Hagsmunasamtök heimilanna