• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Appelsínugul viðvörun um allt land

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. febrúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Austlæg átt, sums staðar allhvöss eða hvöss en hægari á Norður- og Austurlandi. Snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Lægir og styttir upp á sunnanverðu landinu eftir hádegi, en bætir í vind og ofankomu norðanlands seinnipartinn. Frost 1 til 8 stig. Norðan 8-15 m/s og él á morgun, en léttskýjað sunnan heiða. Hægari síðdegis. Það hvessir seint um kvöldið og aðra nótt. Á mánudagsmorgun er búist við suðaustan roki eða ofsaveðri með snjókomu, en slyddu eða rigningu um tíma á láglendi sunnanlands. Síðan tekur við hvöss suðvestanátt með éljagangi, en styttir upp á Norður- og Austurlandi síðdegis.

Veðuryfirlit
500 km NA af Hvarfi er 974 mb lægð á hreyfingu ANA og frá henni liggur lægðardrag að suðurströnd Íslands. Við Nýfundnaland er 1006 mb lægð í myndun. Hún dýpkar og fer hratt NA í kvöld. Yfir Grænlandi er 1015 mb hæð.

 Appelsínugul viðvörun  vegna veðurs: Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Suðausturland og Miðhálendi 

Veðurhorfur á landinu
Austlæg eða breytileg átt 10-18 m/s, en hægari á N- og A-landi. Snjókoma með köflum nokkuð víða og frost 1 til 8 stig. Lægir og styttir upp á S-verðu landinu síðdegis, en fer þá að bæta í vind og ofankomu N-lands.

Norðlæg átt 8-15 m/s og él á morgun, en þurrt og bjart sunnan heiða. Dregur úr vindi og éljum síðdegis. Vaxandi austanátt á S- og V-landi seint annað kvöld.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 10-18 m/s og snjókoma með köflum fram eftir morgni, en hvassara á Kjalarnesi. Lægir síðan og styttir upp, austan 5-10 seinnipartinn. Frost 1 til 6 stig. Norðan 8-13 og bjart veður á morgun. Lægir síðdegis, en vaxandi austanátt seint annað kvöld.
Spá gerð: 05.02.2022 09:53. Gildir til: 07.02.2022 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Suðaustan 18-25 m/s um morguninn, en 23-30 m/s (rok eða ofsaveður) á Suður- og Vesturlandi. Víða snjókoma, en slydda nærri sjávarmáli S-lands.

Snýst í hvassa suðvestanátt með éljum fyrir hádegi á sunnan og vestanverðu landinu. Dregur úr vindi og styttir upp á Norður og Austurlandi seinnipartinn. Hiti um og undir frostmarki.

Á þriðjudag:
Suðvestlæg átt, víða á bilinu 8-15 m/s en norðautsan 8-15 á Norðvesturlandi. Snjókoma eða él, en þurrt A-lands. Frost 2 til 8 stig.

Á miðvikudag:
Norðanátt, 5-13 m/s. Snjókoma eða él í flestum landshlutum. Styttir smám saman upp síðdegis og herðir á frosti.

Á fimmtudag:
Vestlæg átt og bjartviðri, en lítilsháttar él við vesturströndina. Áfram kalt í veðri.

Á föstudag:
Útlit fyrir vaxandi sunnanátt með slyddu og síðan rigningu hlýnandi veðri.

Umræða
Share37Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mesta lækkun fasteignaverðs í 11 ár

    Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    785 deilingar
    Share 314 Tweet 196
  • Karlar sem fremja sjálfsvíg – Einelti, falskar ásakanir og ofbeldi

    288 deilingar
    Share 115 Tweet 72
  • Togarar á strandveiðum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    437 deilingar
    Share 175 Tweet 109
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?