• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 26. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. febrúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
Í síðustu viku slösuðust átta vegfarendur í sjö umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 26. – 1. febrúar, en alls var tilkynnt um 67 umferðaróhöpp í umdæminu.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt sunnudaginn 26. janúar. Kl. 0.19 missti ökumaður á leið suður Gufunesveg í Reykjavík, að gatnamótum Strandvegar, stjórn á bifreið sinni þegar hann var að teygja sig í símann. Við það hafnaði bifreiðin utan vegar og á upplýsingatöflu. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 20.50 varð tveggja bíla árekstur á Miklubraut í Reykjavík, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut, en þeim var ekið úr gagnstæðri átt. Í aðdragandanum ætlaði ökumaðurinn sem ók vestur Miklubraut að taka vinstri beygju á gatnamótum og aka suður Kringlumýrarbraut þegar árekstur varð með þeim. Svo virðist sem grænt ljós hafi logað fyrir þann sem ók í austurátt. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt þriðjudaginn 28. janúar. Kl. 20.33 missti ökumaður á leið suður Ásvallabraut í Hafnarfirði, nálægt Aftantorgi,  stjórn á bifreið sinni í beygju, en við það hafnaði hún á ljósastaur. Ökumaðurinn og farþegi voru fluttir á slysadeild. Og kl. 21.44 varð tveggja bíla árekstur á Grensásvegi í Reykjavík, á gatnamótum við Réttarholtsveg, en þeim var ekið úr gagnstæðri átt. Í aðdragandanum ætlaði ökumaðurinn sem ók austur Grensásveg að taka vinstri beygju á gatnamótum og aka norður Réttarholtsveg þegar árekstur varð með þeim. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild.

Þrjú umferðarslys voru tilkynnt fimmtudaginn 30. janúar. Kl. 11.52 slasaðist ökumaður strætó þegar verið var að draga vagninn, sem var fastur í snjó, af stað aftur í Skeljanesi í Reykjavík. Við átakið brotnaði kaðalfesting dráttarbifreiðarinnar og hafnaði á framrúðu strætisvagnsins, sem brotnaði við það. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Kl. 13.47 var bifreið ekið vestur Vesturlandsveg í Reykjavík, á móts við Ártúnsholt, og aftan á aðra bifreið sem var á  sömu leið. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild. Og kl. 15.16 missti ökumaður á leið suður Breiðhöfða í Reykjavík, að gatnamótum við Stórhöfða, stjórn á bifreið sinni, en við það hafnaði hún á steyptum vegstólpa. Í aðdragandanum sagðist ökumaðurinn hafa verið að forðast árekstur við gangandi vegfaranda sem gekk yfir götuna. Þarna er þrenging á veginum vegna vegavinnu og er steinstólpum raðað upp í beygju sem þar er til þess að vernda vinnusvæðið. Bifreiðin var á slitnum hjólbörðum, en bæði afturdekkin voru sumardekk. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.

Umræða
Share4Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Líkamsárás í Túnahverfi og Hamas-samtökin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bankarnir vilja peningana þína

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Viðvörun: Vindhviður 35 m/s og yfir 45 m/s

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?