,,Þúsundir hafa séð veiðiþáttinn, hann hlaut svaka áhorf!“
Fréttatíminn tók viðtal við Gunnar Bender sem að vann að gerð veiðiþáttanna, Veiðin með Gunnari Bender, s.l. haust og svo aðeins eftir áramótin.
Gunnar sagðist vera rosalega ánægður með viðtökurnar á hinum nýja veiðiþætti sem að sýndur er á Hringbraut á sunnudagskvöldum. ,,Fyrsti þátturinn var sýndur s.l. sunnudagskvöld og Þúsundir fylgdust með veiðiþættinum, hann hlaut svaka áhorf um allt land og ég varð var við mjög sterk viðbrögð.
Við fórum í sjóbirtingsveiði í Leirá og veiðin gekk vel með staðarhöldurum sem að eru flínkir veiðimenn.“ Sagði Gunnar. ,,Ég fékk helling af kommentum á Facebook og símtöl o.þ.h. eftir þáttinn þar sem að veiðimenn voru að lýsa ánægju sinni með veiðiþáttinn sem er bara skemmtilegt að heyra.“
Hringbraut mun svo halda áfram að sýna þættina fram á sumar sem er fínt fyrir veiðimenn í skammdeginu en svo styttist í vorveiðina sem að hefst eftir um þrjá vikur.
Hér að neðan er hægt að horfa á fyrsta þáttinn sem var s.l. sunnudag:
https://www.fti.is/2019/03/03/veidithaettirnir-med-gunnari-bender-hefjast-i-kvold-a-hringbraut/