• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Helgarveðrið með hagstæðasta móti miðað við árstíma

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
5. mars, 2021
0 0
Helgarveðrið með hagstæðasta móti miðað við árstíma

 

Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag er útlit fyrir sunnan 5-10 m/s með skýjuðu veðri og lítilsháttar rigningu af og til, en á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart. Hiti 2 til 7 stig. Í kvöld og nótt bætir í úrkomu á landinu, en á morgun dregur úr henni aftur og verður meira og minna þurrt á stórum hluta landsins á morgun og vindur með hægasta móti. Á sunnudag er síðan áfram hægviðri í kortunum og yfirleitt þurrt og einnig gæti sólin náð að skína nokkuð víða. Hiti breytist lítið og verður á bilinu 2 til 7 stig yfir daginn. Það má því segja að helgarveðrið sé með hagstæðasta móti miðað við árstíma og um að gera að njóta meðan er.

Veðuryfirlit
Yfir Skotlandi er 1035 mb hæð sem þokast SA. Yfir Labrador er víðáttumikil 979 mb lægð sem hreyfist lítið og grynnist.
Samantekt gerð: 05.03.2021 04:06.

Veðurhorfur á landinu
Suðlæg átt 5-10 m/s. Lítilsháttar rigning í dag, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Bætir í rigningu á Suður- og Vesturlandi í kvöld. Hiti 2 til 7 stig. Suðlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun. Dálítil væta á köflum og hiti 2 til 6 stig, en svolítil él um landið norðaustanvert og hiti um frostmark.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 3-8 m/s og lítilsháttar væta af og til. Hiti 3 til 7 stig. Sunnan 5-10 og rigning eða súld í kvöld og nótt. Hæg breytileg átt á morgun og þurrt að kalla, kólnar lítillega í veðri.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Breytileg átt 3-8 m/s og víða dálítil væta, en þurrt að kalla síðdegis. Hiti 1 til 6 stig. Austan 5-10 og él um landið norðaustanvert með hita um frostmark.

Á sunnudag:
Hæg breytileg átt, þurrt veður og bjart með köflum. Hiti 1 til 6 stig. Suðaustan 5-10 og smáskúrir sunnanlands seinnipartinn.

Á mánudag:
Suðlæg átt 5-13 m/s og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands fram á kvöld. Hiti 0 til 5 stig.

Á þriðjudag:
Austlæg átt og dálitlir skúrir eða él í flestum landshlutum. Hvessir á landinu um kvöldið með rigningu suðaustantil. Hiti um og yfir frostmarki.

Á miðvikudag:
Hvöss norðaustanátt með rigningu eða slyddu, en snjókomu til fjalla. Þurrt að kalla sunnan heiða. Hiti 0 til 4 stig.

Á fimmtudag:
Norðaustanátt og él, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Kólnandi veður.

Deila2TweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Umræða

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Á bráðamótöku með stunguáverka eftir líkamsárás

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Brýnt að jafna kynjahlutföll á skipum

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Así vill koma í veg fyrir þrælahald og mannsal á íslenskum farskipum

    46 deilingar
    Deila 46 Tweet 0
  • Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar, ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi

    474 deilingar
    Deila 474 Tweet 0
  • Óréttlæti og valdníðsla

    43 deilingar
    Deila 43 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?