• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 13. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sími ÖBÍ rauðglóandi vegna kjarasamninga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Símalínur Öryrkjabandalagsins voru rauðglóandi í allan gærmorgun, þar sem fólk þyrstir í upplýsingar um áhrif kjarasamninga á almennum markaði á kjör örorkulífeyrisþega. Ekki aðeins hafa fyrirspurnir borist í síma, heldur hefur fjöldi fyrirspurna borist um Facebook síðu ÖBÍ. 
„Við erum ekkert undrandi á því að fólk hafi samband og vilji vita hvaða áhrif þessir kjarasamningar hafa á okkar fólk,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ. „Það er ýmislegt jákvætt í þessum samningum, sýnist mér, og eðlilega hefur fólk væntingar til þess að það skili sér til okkar hóps. Ég hef núna í morgun sett mig í samband við stjórnvöld til að fá skýra mynd af því hvernig „lífskjarasamningurinn“ mun bæta kjör örorkulífeyrisþega,“ segir Þuríður Harpa.
Það má nefna að vegna þrýstings frá ÖBÍ þá beitti ASÍ sér mjög fyrir því að ná fram skattalækkunum fyrir tekjulægsta hópinn, sem nú verður að veruleika.

Fyrirspurn frá öryrkja

Eins og fyrr segir eru símarnir búnir að vera rauðglóandi á skrifstofu ÖBÍ í morgun og einnig hafa komið fyrirspurnir og hvatning í gegnum síðu ÖBÍ á Facebook. Þar á meðal þetta skeyti:
„Það er margt ánægjulegt í nýju kjarasamningunum, og gott að finna sáttartóninn á milli aðila vinnumarkaðirins. En ein spurning brennur mér á vörum, hvað með öryrkja. Það vakti sérstaka athygli mína að okkar háttvirti forsætisráðherra mintist ekki einu orði á öryrkja. Öryrkjar hafa greitt í sjóði verkalýðsfélagana alla sína ævi þangað til þau lentu í sínu slysi eða veikindum sem hafa valdið örorku. Verkalýðsleiðtogarnir minntust ekki einu orði á öryrkja, Enginn minntist á öryrkja sem er tekjulægsti hópurinn í samfélaginu. Á meðal öryrkja er fullt af einstæðum mæðrum og ferðrum með börn á sínu framfæri sem berjast í bökkunum. Hvaða kjarabætur fá öryrkjar? Öryrkjar geta enga björg sér veitt vegna hinnar illræmdu krónu á móti krónu skerðingar og síðan röð skerðinga sem fara í gang um leið og öryrkjar reyna að stíga út á vinnumarkaðinn. Þetta er mjög letjandi og andstyggilegt kerfi. Það er fjöldi öryrkja sem gæti unnið svolítið til að auka tekjurnar sínar en skrefin inn á vinnumarkaðinn eru illstíganleg vegna þessara skerðinga. Öryrkjar verða að fá að vera með í lífskjarapakkanum. Það verður að afnema krónu á móti krónu skerðinguna og keðjuverkandi skerðingarnar sem henni fylgja.  Öryrkjar þurfa að fá sambærilegar kjarabætur og nú eru boðaða þeim sem lægstar hafa tekjurnar, því öryrkjar tilheyra með réttu þeim hópi.
Það er mikilvægt að öryrkjar fái að heyra strax að þeir séu hluti af lífskjarasamningnum og þá hvernig þeirra aðkoma verði að honum.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    176 deilingar
    Share 70 Tweet 44
  • Eftirlýst kona handtekin

    65 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    193 deilingar
    Share 77 Tweet 48
  • Á ekki fyrir mat fyrir barnið sitt – Einstæð móðir á aðeins 459 krónur

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Loðin svör um 54 milljarða sem fóru í loftlagsmál

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?