Minnkandi vestan og suðvestanátt, víða strekkingur en sumsstaðar hvassir vindstrengir við fjöll fram yfir hádegi, einkum norðan- og suðaustanlands. Að mestu skýjað vestantil á landinu en léttir til með deginum og lengst af bjartviðri um austanvert landið. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Fremur hæg vesanátt á morgun og dálítl væta, en áfram þurrt og bjart um austanvert landið. Hiti 6 til 14 stig á morgun, hlýjast syðst.
Veðurhorfur á landinu
Suðvestan 13-20 m/s, hvassast í vindstrengjum norðantil á landinu, en hægari vindur suðvestanlands. Skýjað um vestanvert landið en bjartviðri austantil. Dregur úr vindi og léttir til með deginum, vestan 8-15 síðdegis og víða léttskýjað. Vestan 3-10 á morgun og dálítil rigning eða skúrir, en bjart með köflum um austanvert landið. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast suðaustanlands.
Spá gerð: 05.05.2020 04:55. Gildir til: 06.05.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Vestlæg átt 3-10 m/s. Skýjað og dálitlar skúrir á vestanverðu landinu, en bjartviðri austanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á fimmtudag:
Vestan og síðar norðvestan 5-13. Víða dálitlar skúrir, en léttir til um vestanvert landið með deginum og lengst af léttskýjað suðaustanlands. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast syðst. Lítilsháttar él norðaustantil um kvöldið og hiti nálægt frostmarki.
Á föstudag:
Norðan 5-13 og víða bjartiviðri, en dálítli él um landið norðaustanvert. Hiti frá frostmarki í innsveitum norðaustanlands, upp í 10 stig á Suðurlandi yfir daginn.
Á laugardag:
Hæg norðlæg átt og bjart með köflum, en stöku él austantil á landinu. Hiti 4 til 10 stig en kringum frostamark norðan- og austanlands, og víða frost að næturlagi.
Á sunnudag:
Suðvestanátt og að mestu skýjað, en léttir til um landið norðaustanvert. Hiti víða 5 til 10 stig.
Á mánudag:
Suðvestanátt og ringing, en skýjað og þurrt austantil á landinu. Hlýnar heldur.
Spá gerð: 04.05.2020 20:52. Gildir til: 11.05.2020 12:00.