• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 22. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Meirihluti brotaþola í kynferðisbrotamálum eru börn eða 61%

Lögreglan eflir forvarnir í kynferðsbrotamálum gegn börnum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. maí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
  • Meirihluti brotaþola í kynferðisbrotamálum eru börn eða 61%
  • Innleiða á sérstakt áhættumat til að tryggja betur öryggi barna gegn kynferðisbrotum fullorðinna
  • Rannsakendur kynferðisbrota og ákærendur innan lögreglunnar sitja tveggja daga vinnustofu um áhættumat í kynferðisbrotamálum gegn börnum til að undirbúa þróun forvarnaviðbragða og forgangsröðunar mála.

Ríkislögreglustjóri telur mikilvægt að efla forvarnir í kynferðisbrotamálum gegn börnum með því að innleiða sérstakt áhættumat vegna kynferðisbrota. Samkvæmt tölfræði lögreglunnar er meirihluti brotaþola í kynferðisbrotamálum, eða 61%, börn að aldri. Hlutfallið hækkar í 70% þegar horft er til kynferðislegrar áreitni, brota gegn kynferðislegri friðhelgi og blygðunarsemisbrota. Þá eru börn u.þ.b. þriðjungur fórnarlamba nauðgana. Meðalaldur grunaðra er 30-35 ára.

Um er að ræða hluta af aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi með áherslu á gerendur ofbeldis. Skipað var sérstakt aðgerðateymi sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri og Eygló Harðardóttir störfuðu í.  Ein af tillögum aðgerðateymisins var að þróa og innleiða áhættumatskerfi hjá lögreglu til að greina betur aðstæður í kringum kynferðisbrot fullorðinna gegn börnum, mynstur hegðunar og mögulegar kveikjur brotanna. Þá  gæti áhættumatið auðveldað lögreglumönnum að bera kennsl á áhættuþætti og stýra forvörnum og stuðningi til að draga úr líkum á frekari brotahegðun. Þannig er áhættumatinu ætlað að draga fram þjónustuþörf út frá eðli og alvarleika áhættuþátta og styðja við ákvarðanir lögreglu í tengslum við forvarnir í kynferðisbrotamálum gegn börnum.

Verkefnið hefur verið undirbúið af hópi sérfræðinga ríkislögreglustjóra, Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Kanadískur prófessor í réttarsálfræði aðstoðar við þróun áhættumatskerfisins

Vinna er hafin við að þróa áhættumatið en í henni felst m.a. að rannsakendur kynferðisbrota og ákærendur innan lögreglunnar munu næstu tvo daga sitja vinnustofu um áhættumat í kynferðisbrotamálum gegn börnum. Vinnustofan verður leidd af Stephen Hart, prófessor í réttarsálfræði við Simon Fraser háskólann í Kanada sem er virkur í rannsóknum og þjálfun um allan heim og er einn helsti sérfræðingur um áhættumat í heiminum í dag. Helstu samstarfsaðilum lögreglunnar vegna þjónustu við þolendur kynferðisbrota er jafnframt boðið að sitja hluta vinnustofunnar til þess að þróa sameiginlega leiðir til að auka öryggi brotaþola og mögulegrar brotaþola.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    149 deilingar
    Share 60 Tweet 37
  • Líkamsárás í Úlfarsárdal

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fjársvik: Selur mörgum sama gáminn sem ekki er til

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?