Mikil aukning í skólahluta Erasmus+
Rannís hefur úthlutað ríflega 4 milljónum evra eða um 500 m.kr. í náms- og þjálfunarstyrki úr menntahluta Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlunar ESB. Aldrei hefur verið úthlutað eins miklu fjármagni og í ár. Peningunum var úthlutað til 43 verkefna og njóta ríflega eitt þúsund einstaklingar frá skólastofnunum, fræðsluaðilum og fyrirtækjum góðs af styrkjunum að þessu sinni.
Styrkir hafa farið stighækkandi og í ár voru það einkum leik-grunn- og framhaldsskólar sem nutu góðs af því. En það er þó háskólastigið sem fær hæstu styrkina.
Alls bárust 77 umsókn um styrki að upphæð um 850 m.kr og hefur aldrei verið sótt um hærri upphæð. Flestir umsækjendur hafa sótt um áður en þó er alltaf eitthvað um að nýliðar sæki um. Einkum er það í skólahlutanum sem nýliðar koma inn enda flestir lögaðilar í þeim flokki.
Náms- og þjálfunarverkefni gefa nemendum og starfsfólki skóla á öllum skólastigum, fræðslustofnana og fyrirtækja sem sinna menntun tækifæri til að taka hluta af námi eða sinna starfsþjálfun og kennslu í 33 löndum í Evrópu. Að auki geta háskólar sótt um samstarfsstyrki við lönd utan Evrópu. Eins og undanfarin ár var hæstum styrkjum úthlutað til Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Tækniskólans.
Einnig er gaman að geta þess að Verkmenntaskóli Austurlands á Neskaupsstað fékk góðan styrk fyrir iðn- og verknámið hjá sér. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fengu áframhaldandi styrk til að efla samstarf sveitarfélaganna varðandi móttöku flóttafólks. Í fullorðinsfræðslunni voru veittir styrkir til efla þjálfun fólks sem vinnur með innflytjendum og fólki í virkri atvinnuleit.
Svo má geta þess að Langholtsskóli, í samvinnu við skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, sótti um styrk fyrir sína hönd og fjögurra leikskóla í hverfinu til að kynna sér hvernig efla megi mál og læsi barna á leik- og grunnskólastig.
Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlun Evrópusambandsins er stærsta áætlun í heimi á þessu sviði. Ísland fær árið 2018 um 9 milljónir evra eða ríflega 1,1 milljarð króna til úthlutunar. Þar af eru um 870 m.kr. til menntahlutans.
Markmið Erasmus+ áætlunarinnar í menntun eru að ýta undir nýsköpun og þróun á evrópskum menntakerfum, meðal annars með því að styðja verkefni sem miða að því að efla grunnþætti eins og læsi og stærðfræði, auka alþjóðasamstarf háskóla, ýta undir sköpunargáfu og frumkvæði nemenda, vinna gegn brotthvarfi, innleiða upplýsingatækni, efla starfsemi skólabókasafna og almennt efla gæði í menntun á öllum skólastigum og í atvinnulífi.