Undirritaður hættir seint að furða sig á þeim eindæmum sem meirihluti borgarstjórnar tekur upp á. Það er ekki eitt, það er allt.
Nú tekur þó steininn úr, eina ferðina enn: Samþykkt var á fundi skipulags og samgönguráðs í vikunni að heimila uppsetningu 5 smáhýsa við Héðinsgötu 8 í Laugarneshverfi að ósk Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Málið átti að keyra í gegn í síðustu viku, en undirritaður náði að stoppa það af og fékk vilyrði fyrir því að fulltrúar tveggja líknarsamtaka sem starfa á sama stað og höfðu sent inn alvarlegar athugasemdir vegna málsins, yrðu boðaðir á fund velferðasviðs áður en atkvæðagreiðsla færi fram.
Því miður var það ekki gert, ekkert var gert.
Eins og kunnugir vita þekkir undirritaður heim þeirra sem lent hafa í klóm áfengis og fíkniefnavanda allvel. Eiginlega skelfilega vel.
En undirritaður þekkir líka allvel hversu margir hafa náð bata og lifa í dag gefandi, hamingjusömu og fallegu lífi. Eiginlega dásamlega vel.
Því var það sönn ánægja að geta miðlað af þeim fróðleik sem lífið og reynslan hafa skilað af sér til þeirra er fundinn sátu og bent á að þegar líknarfélög eins og þau tvö sem hér um ræðir senda inn alvarlegar athugasemdir, þá ber að hlusta.
En því miður var talað fyrir tómum eyrum. Eins og svo oft áður, þá skiptir raunveruleikinn meirihlutann litlu máli. Engu máli.
Eins og venjulega munu aðrir bera skaðann af verkum þeirra. Þau skella sér í einn Latté á meðan.
Baldur Borgþórsson
Varaborgarfulltrúi Miðflokksins
Eftirmáli.
Hér er bókun undirritaðs vegna málsins:
Fulltrúi Miðflokksins mótmælir harðlega samþykkt deiliskipulagsbreytingar vegna Héðinsgötu 8 í ljósi þeirra athugasemda sem bárust við auglýsingu breytingar.
Lítum nánar á tvær þeirra athugasemda sem bárust:
Draumasetrið, nálægð,30metrar:
Síðastliðin 6 ár hefur líknarfélag rekið áfangaheimilið Draumasetrið fyrir 42 sálir að Héðinsgötu 10 með samþykki borgarráðs og skipulagsyfirvalda Reykjavíkur og Faxaflóahafna.
Íbúar hússins er undantekningalaust fólk sem er í bataferli eftir að hafa verið í neyslu áfengis og fíkniefna og koma flestir frá SÁÁ, Hlaðgerðarkoti, Krísuvík og fangelsum.
Allt er gert til að íbúum líði sem best, með miklu aðhaldi, ströngum reglum, fundum og hjálp til að komast aftur til betra lífs.
Alanó, nálægð,10metrar:
Alanó rekur líknarfélag við Héðinsgötu 1-3 þar sem starfræktar eru yfir 50 12spora deildir AA samtakanna.
Varlega áætlað sækja 250-500 manns þessa þjónustu daglega og er stór hluti þeirra nýliðar sem eru að stíga fyrstu og erfiðustu skrefin að nýju lífi án áfengis og fíkniefna.
Samantekt:
Það frábæra starf sem Draumasetrið og Alanó hafa staðið fyrir í fjölda ára er sett í algjört uppnám þar sem ein stærsta forsenda bata alkahólista og fíkla er að slíta með öllu samgangi við neyslustaði og þá sem eru í neyslu.
Að setja bata þúsunda í hættu fyrir úrræði fyrir 5 einstaklinga er glapræði.
Baldur Borgþórsson Varaborgarfulltrúi Miðflokksins