• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Creditinfo sektað um 38 milljónir vegna rangra skráninga

Creditinfo

Alvarlegar athugasemdir við starfsleyfi Creditinfo – Nauðsynlegt að endurskoða starfsleyfi Creditinfo vegna almannahagsmuna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. júlí 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Telja fullreynt að fyrirtækið taki sjálft frumkvæði að því að verja hagmuni þeirra sem skráðir eru á vanskilaskrá og því sé nauðsynlegt að endurskoða starfsleyfi Creditinfo með tillit til almannahagsmuna

Neytendasamtökin og Alþýðusamband Íslands gera alvarlegar athugasemdir í umsögn sinni til Persónuverndar um starfsleyfi Creditinfo.
Creditinfo heldur einu eiginlegu vanskilaskrá yfir einstaklinga á Íslandi, skrá sem flestallar innlendar lánastofnanir nýta sér í tengslum við afgreiðslu erinda, hvort heldur sem er við upphaf viðskipta eða fyrirgreiðslu. Skráningin er gerð með starfsleyfi frá Persónuvernd.
Samtökin telja að svona umfangsmikil skráning viðkvæmra persónuupplýsinga væri betur farið á höndum hins opinbera. Ef stjórnvöld, hins vegar, fela einkafyrirtæki slíka skráningu telja samtökin bæði rétt og eðlilegt að ríkar skyldur séu lagðar á fyrirtækið og að óheimil vinnsla þess á persónuupplýsingum skuli teljast brot á starfsleyfi er varði viðurlögum samkvæmt lögum um persónuvernd.
Telja samtökin mikilvægt að eftirlit með starfseminni sé virkt og tryggt að brot gegn starfsleyfi fái ekki að viðgangast í margar vikur, mánuði eða jafnvel ár án þess að brugðist sé við. Af heimasíðu Persónuverndar má ráða að allir úrskurðir Persónuverndar varðandi Creditinfo eru tilkomnir vegna kvartana þriðja aðila sem telur á sér brotið eða ábendinga utanaðkomandi aðila.
Þá telja samtökin mikilvægt að viðskiptagrundvöllur Creditinfo verði skoðaður í tengslum við endurskoðun starfsleyfisins. Er þar sérstaklega horft til þess að tryggt verði að fyrirtækið hafi ekki beina verulega hagsmuni, s.s. fjárhagslega, af skráningu eða viðskiptum við innheimtufyrirtæki sem nýta sér heimild til skráningar á vanskilaskráningar.
Kann að vera nauðsynlegt að setja slíkri starfsemi og tengslum frekari skorður. Í það minnsta telja samtökin brýnt að afturköllun starfsleyfisins og beiting viðurlaga, s.s. sekta, verði í reynd virk úrræði til þess verja hagsmuni almennings.
Samtökin telja fullreynt að fyrirtækið taki sjálft frumkvæði að því að verja hagmuni þeirra sem skráðir eru á vanskilaskrá og því sé nauðsynlegt að endurskoða starfsleyfi Creditinfo með tillit til almannahagsmuna.

Hér eru nokkur þeirra atriða sem gerðar voru athugasemdir við:

• Samtökin gera athugasemdir við að heimildir í starfsleyfinu vísi í brottfallin lög 77/2000. Sæti það furðu að Persónuvernd geti veitt starfsleyfi með vísan í lög sem ekki eru í gildi.

• Samkvæmt starfsleyfinu er heimilt að skrá á vanskilaskrá skuld sem nemur að lágmarki 50.000 kr. höfuðstól. Upphæðin hefur ekki breyst í áraraðir og þarf að hækka hana verulega, sér í lagi í ljósi verulegra íþyngjandi áhrifa sem skráning á vanskilaskrá hefur í för með sér.

• Samtökin telja með öllu óásættanlegt, stórfurðulegt og öfugsnúið, að Creditinfo hafi hugsanlega hag af brotum áskrifenda sinna, en brjóti áskrifandi hjá Creditinfo gegn skilmálum starfsleyfisins hækkar áskriftargjald til Creditinfo. Sektin ætti að renna til þess sem brotið er á eða í ríkissjóð.

• Samtökin telja eðlilegt og í raun mjög mikilvægt að gerð verði sú krafa að starfsleyfishafa sé skylt að veita stjórnvöldum tölfræðilegar upplýsingar um hvaðeina sem óskað er eftir, og ekki er persónugreinanlegt. Þar með talið, en ekki einskorðað við; upplýsingar um fjölda skráninga, tegundir lána, aldur lántaka, búsetu ofl. Slíkar upplýsingar eru mjög mikilvægar í samfélagslegu tilliti. Má nefna að enginn hefur t.a.m. aðgang að upplýsingum um umfang vanskila vegna smálána. En Creditinfo hefur sem dæmi margítrekað hafnað að veita yfirvöldum og félagasamtökum upplýsingar um umfang smálánastarfseminnar á Íslandi.

• Herða þarf á virku eftirliti og raunverulegum viðurlögum við brotum frá því sem nú er enda sýnir sagan að Creditinfo grípur seint og illa til aðgerða gagnvart viðskiptavinum sínum sem brjóta innheimtulög og Persónuvernd bregst ekki við brotum nema að skuldari kvarti undan starfsháttum Creditinfo. Þá virðist sem brot félagsins á starfsleyfi hafi ekki neina eftirmála.

• Creditinfo er heimilt að geyma viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar í fjögur ár og stundum mun lengur. Samtökin telja þetta afar íþyngjandi fyrir skráningarþola og telja t.a.m. óréttlátt að allar kröfur að upphæð 50.000 kr. og hærri megi geyma svo lengi.

• Samtökin telja að sú tilhögun að meintur skuldari þurfi að færa sönnur á skuldleysi sitt feli í sér öfuga sönnunarbyrði sem brýtur í bága við meginstefnu neytendaréttar. Tilhöguninni þarf að breyta á þann hátt að starfsleyfishafi þurfi á hverjum tíma að geta fært sönnur á réttmæti kröfu sem skráð er í vanskilaskrá hans.

Skráning umdeildra skulda á vanskilaskrá er óheimil – Lögheimtan og Creditinfo

Fréttin var fyrst birt 25. júní 2020

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?