• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Framkvæmdir við leikskólann Urriðaból ganga vel

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. ágúst 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Framkvæmdir við nýjan leikskóla í Urriðaholti, Urriðaból, ganga vel og samkvæmt áætlun. Búið er að ráða í margar stöður í leikskólanum, þar á meðal leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra og sex deildarstjóra.

Framkvæmdir við nýjan leikskóla í Urriðaholti, Urriðaból, ganga vel og samkvæmt áætlun. Leikskólinn tekur til starfa nú í byrjun hausts  og verður fyrst um sinn staðsettur við Kauptún í húseiningum sem reistar hafa verið á staðnum. Urriðaból í Kauptúni verður sex deilda leikskóli fyrir rúmlega 90 börn og er undanfari nýs leikskóla sem verður byggður við Holtsveg í Urriðaholti. Stærð lóðarinnar í Kauptúni er um 5.000 m2 með bílastæðum, heildarstærð húsnæðis er um 931,1 m2. Þegar Urriðaból við Holtsveg verður tekið til starfa mun skólinn sinna allt að 210 börnum. 

Undirbúningur fyrir haustið gengur vel og búið er að ráða í margar stöður í leikskólanum, þar á meðal leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra og sex deildarstjóra.

Almar Guðmundsson bæjarstjóri heimsótti leikskólann á dögunum og hitti þar fyrir fulltrúa Skóla ehf sem munu sjá um rekstur skólans ásamt verktökum. „Það er ánægjulegt að framkvæmdir við Urriðaból ganga vel og að samstarfið við Skóla ehf. fer vel af stað. Skólinn mun opna í september og við hlökkum til að taka hann í notkun og taka á móti börnum og foreldrum þeirra.“IMG_4715

Skólar ehf. leggja áherslu á heilsueflandi skólastarf

Garðabær og Skólar ehf gerðu með sér samning fyrr í sumar um rekstur leikskólans Urriðabóls við Kauptún. Samningurinn er til þriggja ára og í honum er kveðið á um að Skólar ehf. bera ábyrgð á framkvæmd faglegs leikskólastarfs samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum ásamt rekstrarþáttum tengdum leikskólastarfinu.

Skólar ehf er liðlega 20 ára fyrirtæki sem er í dag að reka fjóra heilsuleikskóla, Heilsuleikskólann Krók í Grindavík, Heilsuleikskólann Kór í Kópavogi, Heilsuleikskólann Skógarás í Reykjanesbæ og Heilsu-ungbarnaskólann Ársól í Reykjavík. Allir leikskólar Skóla ehf starfa samkvæmt Heilsustefnu, sem kennd er við Unni Stefánsdóttur, og hafa auk þess tekið virkan þátt í þróun verkefnisins Heilsueflandi leikskóli í samvinnu við Embætti landlæknis

IMG_4696Útsýnið frá leikskólalóðinni er einkar glæsilegt.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?