• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þúsundir tóku þátt í Ljósanótt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. september 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Einstaklega vel heppnaðri Ljósanæturhátíð lauk á sunnudagskvöld eftir fjögurra daga viðburðaveislu sem fram fór í blíðskaparveðri í Reykjanesbæ. Talið er að yfir 30 þúsund gestir hafi verið á hátíðarsvæðinu á laugardagskvöld þegar hápunkti hátíðarinnar var náð með glæsilegri flugeldasýningu stórtónleikum þar sem fram komu hljómsveitirnar Flott og Vök ásamt Bubba Morthens og Birni.

Guðlaug María Lewis, verkefnastjóri hátíðarinnar segir að það hafi mátt skynja mikla ánægju meðal gesta sem virtust njóta þess einstaklega vel að geta loks komið saman á nýjan leik eftir þriggja ára hlé vegna samkomutakmarkana. Hún segir á annað hundrað dagskrárliða hafa verið á dagskrá hátíðarinnar og því sannarlega af nægu að taka fyrir gesti Ljósanætur.

Hún segir frábært að upplifa hvernig verslanir, skemmtistaðir og veitingastaðir hafi tekið fullan þátt í að bjóða upp á glæsilega dagskrá á Ljósanótt og þá fari íbúaverkefnum fjölgandi sem sé ánægjuleg þróun. Guðlaug segir að hátíð eins og Ljósanótt sé gríðarleg lyftistöng fyrir samfélagið allt og það hafi verið einkar áberandi núna eftir þetta langa hlé og frábært að sjá hvernig allt hafi hreinlega lifnað við og sprungið út þessa síðustu daga.

Fjögurra daga veisla

Hátíðin var sett á fimmtudag með leik- og grunnskólabörnum og þann sama dag opnuðu listsýningar um allan bæ en á Ljósanótt hefur menningartengd áhersla verið í forgrunni. Á föstudagskvöld var öllum gestum hátíðarinnar boðið upp á ljúffenga íslenska kjötsúpu frá Skólamat og svo tóku við heimatónleikar í hverfum bæjarins auk nýs íbúaverkefnis þar sem íbúar tveggja gatna buðu upp á glæsilega útitónleika. Gríðargóð stemning var á þessum viðburðum enda léku veðurguðirnir á alls oddi og norðurljósin dönsuðu á himni í takt við tónlistina.

Á laugardag fylltist hátíðarsvæðið þegar þúsundir tóku þátt í árgangagöngu á Hafnargötu sem endaði við hátíðarsviðið þar sem Kjartan Már Kjartansson bauð gesti velkomna við dynjandi undirleik Stórsveitar Suðurnesja. Gestir nutu dagsins í einróma veðurblíðu fram á kvöld. Á sunnudag voru sýningar enn opnar og m.a. var boðið upp á tónleika í Kirkjuvogskirkju í Höfnum með Elízu Newman og Lay Low.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Togarar á strandveiðum

    Togarar á strandveiðum

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    127 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Íslandsbanki: Eru forsendur sölunnar þegar brostnar?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    69 deilingar
    Share 28 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?