• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sóttvarnir í framhalds- og háskólum: Tímabundnar hertar aðgerðir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Tilkynnt hefur verið um hertar sóttvarnarráðstafanir í framhalds- og háskólum í ljósi minnisblaði sóttvarnarlæknis frá í gær, 3. október 2020. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði með skólameisturum framhaldsskóla og rektorum háskólanna í dag og kynnti breytingar sem um ræðir. Unnið er að uppfærslu leiðbeininga til skólanna um áhrif nýrra sóttvarnarráðstafana á ýmsar hliðar skólastarfsins og verða þær gerðar aðgengilegar á vef ráðuneytisins hið fyrsta, þær byggja á auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi.
Hertar aðgerðir taka gildi á miðnætti og gilda um land allt. Ráðgert að þær muni gilda næstu tvær vikurnar, til og með 19. október 2020. Líkt og aðrar sóttvarnarráðstafanir eru þær þó háðar stöðugu endurmati. Helstu breytingar frá fyrri ráðstöfunum eru að hámarksfjöldi í rými fer úr 100 einstaklingum í 30 manns í skólum.
Nemendur í staðnámi framhalds- og háskóla þurfa nú að vera í að hámarki 30 manna hópum í kennslustofum en mega nota sömu innganga og sameiginleg rými þar sem ekki er höfð löng dvöl. Blöndun nemenda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfsfólki er heimilt að fara á milli hópa, en þurfa að gæta að sóttvörnum. Almennt er mælst til grímunotkunar í framhalds- og háskólum en grímuskylda er þar sem ekki er hægt að virða reglur um hámarksfjölda og nálægðarreglu um minnst 1 metra fjarlægð, s.s. í sameiginlegum rýmum og við innganga.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra: „Skólafólk er úrræðagott og aðlögunarfært við krefjandi aðstæður. Vonir standa til þess að þetta verði aðeins tímabundin ráðstöfun og vel takist á næstu tveimur vikum að ná utan um fjölgun smita. Samtakamáttur og sveigjanleiki mun koma okkur út úr þessu, mikilvægt er að við hugum öll vel að nemendum í nærumhverfinu og hvert að öðru.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mesta lækkun fasteignaverðs í 11 ár

    Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    786 deilingar
    Share 314 Tweet 197
  • Karlar sem fremja sjálfsvíg – Einelti, falskar ásakanir og ofbeldi

    288 deilingar
    Share 115 Tweet 72
  • Togarar á strandveiðum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    437 deilingar
    Share 175 Tweet 109
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?