• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkisstjórnin hundsar atvinnulausa sem betla mat

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. desember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fjöldi fólks beið í nístingskulda eftir mat frá Fjölskylduhjálp vegna aðgerðarleysis ríkisstjórnarinnar

Ríkisstjórnin gerir ekkert fyrir þá sem fá engar atvinnuleysisbætur

Öll stærstu stéttarfélög landsins hafa skorða á ríkisstjórnina að lengja bótatímil atvinnuleysistrygginga sem var skert um sex mánuði, þá hefur Reykjavíkurborg og nú Reykjanesbær einnig skorað á ríkisstjórnina. Krafan er lögð fram vegna þess ástans sem er í þjóðfélaginu en bótatímabilið var framlengt á árunum eftir bankahrunið. Þúsundir íslendinga hafa misst bótarétt sinn og þeim fjölgar í hverjum mánuði og enn hundsar ríkisstjórnin atvinnulausa sem eiga margir ekki möguleika á vinnu og þurfa að betla mat.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur skorað á ríkisstjórnina að lengja tímabil atvinnuleysisbóta tímabundið. Fjöldi fólks beið í nístingskulda eftir mat frá Fjölskylduhjálp Reykjanesbæjar. Rúv greindi frá áskoruninni og þar kemur fram að atvinnuleysi hafi aukist mikið vegna faraldursins og hvergi meira en í Reykjanesbæ, þar sem fimmti hver maður er nú atvinnulaus. „Það eru fleiri þúsund manns og ef fer fram sem horfir þá munu mjög margir lenda í vandræðum,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Einstaklingum sem þiggja fjárhagsaðstoð til framfærslu frá bænum hefur fjölgað um rúmlega 63 prósent frá síðasta ári. Bæjarstjórn hefur því skorað á ríkisstjórn Íslands að lengja tímabil atvinnuleysisbóta tímabundið  „Þó atvinnuleysisbætur séu lágar, þá er fjárhagsaðstoð sveitarfélaga sem bíður þeirra sem að falla út af atvinnuleysisskrá helmingi lægri og er ekki hugsað sem framtíðarúrræði fyrir nokkurn mann eða fjölskyldu að lifa á,“ segir Kjartan.

Bótatímabilið var framlengt á árunum eftir bankahrunið og gæti komið til greina nú

Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar sagði að málið væri pólitískt þegar hún var spurð út í það á upplýsingafundi almannvarna. Hún benti á að bótatímabilið hefði verið framlengt á árunum eftir bankahrunið og því gæti slíkt komið til greina nú.

https://gamli.frettatiminn.is/28/11/2020/atvinnulausir-arid-2020-fa-enga-desemberuppbot-nema-uppfylla-throng-skilyrdi/

Umræða
Share299Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?