Viðvaranir hafa verið færðar upp á rautt fyrir þrjú spásvæði, höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa og Suðurland. Spáð er suðaustan roki eða ofsaveðri, 23-30 m/s með snjókomu og skafrenningi en slyddu næst sjávarsíðunni.
Fólki er ráðlagt að ganga vel frá lausum munum. Verktökum er bent á að ganga vel frá framkvæmdasvæðum. Foreldrum er einnig bent á að fylgjast vel með hvernig skólahaldi verður háttað. Sjá viðvaranir og tímasetningar þeirra á vefnum okkar: https://www.vedur.is/vidvaranir
Hugleiðingar veðurfræðings
Nokkuð stíf norðanátt með éljum fram eftir degi, en þurrt og bjart syðra. Frost 0 til 8 stig. Í kvöld nálgast mjög djúp lægð suðvestan úr hafi. Seint í nótt og fyrramálið er búist við suðaustan stormi, roki eða ofsaveðri með snjókomu, en slyddu við suðurströndina. Snýst síðan í hvassa suðvestanátt með éljagangi, en styttir upp á norðaustanverðu landinu síðdegis á morgun. Hiti um og undir frostmarki. Lægðin grynnist á þriðjudag, en heldur áfram að dæla inn éljum á sunnan- og vestanvert landið og því ekki gott ferðaveður á þeim slóðum.
Spá gerð: 06.02.2022 06:33. Gildir til: 07.02.2022 00:00.
Veðuryfirlit
Um 600 km NA af Nýfundnalandi er ört dýpkandi 984 mb lægð hreyfist all hratt NA. Austur við Noreg er 963 mb lægð sem fer NA, en frá henni er lægðardrag til vesturs fyrir sunnan land.
Samantekt gerð: 06.02.2022 08:10.
Veðurhorfur á landinu
Norðlæg átt 8-15 m/s og él í dag, en þurrt og bjart sunnan heiða. Dregur úr vindi og éljum síðdegis. Vaxandi austanátt á S- og V-landi seint í kvöld, frost 1 til 8 stig. Gengur í suðaustan 20-30 m/s í nótt og fyrramálið. Víða snjókoma, en slydda nærri sjávarmáli S-lands. Snýst í hvassa suðvestanátt með éljum fyrir hádegi á S- og V-verðu landinu og dregur síðan úr vindi og styttir upp á N- og A-landi. Hiti um og undir frostmarki.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðan 5-13 m/s, en lægir og léttir til í dag. Frost 1 til 6 stig. Vaxandi austanátt í kvöld, suðaustan 23-30 og snjókoma seint í nótt, hvassast á Kjalarnesi og í efri byggðum. Snýst í hvassa suðvestanátt með éljum í fyrramálið, hiti í kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðvestlæg átt, 8-15 m/s og talsverð él á sunnan og vestanverðu landinu en norðaustan 13-20 m/s með snjókomu norðvestantil. Úrkomulítið um landið norðaustanvert og hægari breytileg átt þar eftir hádegi. Frost 2 til 10 stig, kaldast norðaustanlands en frostlaust við suðurströndina.
Á miðvikudag:
Norðan 8-15 og él í flestum landshlutum, en lægir eftir hádegi og léttir til á suður og vesturlandi síðdegis. Harðnandi frost.
Á fimmtudag:
Vestlæg átt og bjartviðri, en dálítil él vestanlands. Frost víða 5 til 15 stig.
Á föstudag:
Snýst í suðlæga átt með stöku éljum en léttskýjað á norðaustur- og austurlandi. Frost 0 til 12 stig, kaldast norðaustantil.
Á laugardag:
Sunnanátt og slydda eða rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnandi veður.