• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 12. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjárhagsstaða kvenna er verri en karla – Staða foreldra versnar

Fjárhagsstaða kvenna er verri en karla – Staða foreldra versnar

Staða innflytjenda mælist markvert verri en innfæddra Íslendinga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. mars 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Fjárhagsstaða launafólks svipuð nú og fyrir ári síðan en bregðast þarf við stöðu barnafólks og innflytjenda

Nýútkomin skýrsla Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins um lífsskilyrði launafólks var birt í dag. Niðurstöður byggja á rannsókn sem náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttafélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er fjórða árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú en yfir 21.000 svör bárust. Almennt gefur skýrslan til kynna að staða launafólks er heilt yfir sambærileg stöðu þess fyrir ári síðan, en verri en árið 2022.

Helstu niðurstöður benda til þess að grípa þurfi til aðgerða til að bæta stöðu tiltekinna hópa samfélagsins. Þar má sérstaklega nefna þrjá þætti:

Staða foreldra versnar milli ára en samkvæmt rannsókninni býr barnafólk almennt við þyngri byrði húsnæðiskostnaðar en barnlausir, hærra hlutfall foreldra hefur ekki efni á grunnþáttum fyrir börnin sín, en í fyrra og eru þeir líklegri til að vera með yfirdrátt en aðrir. Þá býr tæplega fjórðungur einhleypra foreldra við efnislegan skort og ríflega sex af hverjum tíu einhleypum mæðrum gætu ekki mætt óvæntum 80.000 kr. útgjöldum.

Fjárhagsstaða kvenna er verri en karla á öllum heildarmælikvörðum og konur eru háðari maka um framfærslu en karlar. Andleg heilsa ungra kvenna, einhleypra mæðra er auk þess áberandi verri en annarra hópa en ríflega helmingur þeirra býr við slæma andlega heilsu.

Staða innflytjenda mælist markvert verri en innfæddra Íslendinga fjórða árið í röð. Hærra hlutfall þeirra erfitt með að ná endum saman, getur ekki mætt óvæntum útgjöldum og hafa ekki getað greitt fyrir grunnþætti fyrir börnin sín. Auk þess er staða innflytjenda á húsnæðismarkaði gjörólík stöðu innfæddra. Innflytjendur eru í mun minna mæli í eigin húsnæði, búa við þyngri húsnæðisbyrði og hafa oftar flutt og búa í meira mæli í húsnæði sem hentar illa. Meira en helmingur innflytjenda á Íslandi sér fyrir sér að setjast hér að til frambúðar.

Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar. Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?