Hugleiðingar veðurfræðings
Kröpp og djúp lægð er núna vestur af landinu. Í nótt gengu skilin yfir landið og nú erum við í hlýjast hluta veðrakerfisins. Úrkoman verður engu að síður blönduð, rigning, slydda og jafnvel snjókoma á köflum. á Austurhluta landsins verður úrkoman mun minni, vindur hægari og hitatölur heldur hærri. í kvöld verður lægðin aðeins farin að grynnast og dregur þá heldur úr vindi. Á morgun verður vindur suðvestlægari, gæti slegið í storm allra vestast, en hægari annars staðar. Úrkoman orðin heldur vetrarlegri að auki ásamt slæmu skyggni en að auki mun kólna svolítið.
Á sunnudag er síðan útlit fyrir mun skaplegra veður, mun hægari vindur og bjartviðri austanlands, en fremur úrkomusamt sunnan- og vestantil. Spá gerð: 06.03.2026 06:31. Gildir til: 07.03.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Suðlæg átt, víða 13-20 m/s og rigning eða slydda með köflum, snjókoma á Vestfjörðum, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 1 til 8 stig. Él vestantil í kvöld og kólnar.
Suðvestan 13-23 á morgun, hvassast norðvestantil. Él eða slydduél, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 0 til 5 stig.
Spá gerð: 06.03.2026 07:36. Gildir til: 08.03.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Suðaustlæg átt 5-15 m/s, hvassast syðst, en einnig norðantil um tíma. Víða snjókoma eða él, en úrkomuminna norðaustanlands framan af. Frost 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn.
Á mánudag:
Gengur í allhvassa eða hvassa suðaustanátt með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu, en að mestu þurrt norðaustanlands fram eftir degi. Hlýnandi veður.
Á þriðjudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt. Sums staðar dálitlar skúrir eða él, en víða bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti víða 0 til 5 stig yfir daginn.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðlæga eða breytileg átt og snjókomu eða él, en slyddu eða rigningu suðaustantil. Þurrt að mestu suðvestantil. Hiti 0 til 5 stig.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir ákveðna norðvestlæga átt með ofankomu norðantil og á Vestfjörðum, annars hægari og úrkomulítið. Kólnar.
Spá gerð: 06.03.2026 08:14. Gildir til: 13.03.2026 12:00.

