Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, undirrita viljayfirlýsingu um byggingu nýrrar þjóðarhallar í innanhúsíþróttum í dag, föstudaginn 6. maí, kl. 15:30 í Laugardalnum.
Undirritunin fer fram utandyra í trjágöngunum í Laugardal vestanmegin við Skautahöllina eins og sýnt er á korti að neðan. Bílastæði eru við Skautahöllina og Laugardalshöll. Ráðherra íþróttamála, forsætisráðherra og borgarstjóri verða til viðtals að lokinni undirritun.
Umræða