• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Föstudagur, 2. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Helmingur nær tæpast endum saman

Slæm andlega heilsa einstæðra mæðra og versnandi hagur launafólks

ritstjorn by ritstjorn
6. maí 2023
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter
Ný skýrsla Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins leiðir í ljós slæma andlega heilsu einstæðra mæðra og versnandi hag launafólks
Ný könnun Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins leiðir í ljós að þeim fer fjölgandi sem eiga erfitt með að ná endum saman og á sú lýsing nú við um tæpan helming vinnandi fólks á Íslandi samanborið við ríflega þriðjung í fyrra. Meira en helmingur einstæðra mæðra og ungra kvenna býr við slæma andlega heilsu og vaxandi húsnæðiskostnaður íþyngir leigjendum og ungu fólki.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Vörðu -Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins um lífsskilyrði launafólks sem birt er í dag. Almennt gefur skýrslan til kynna versnandi hag vinnandi fólks í landinu.

Samkvæmt rannsókninni býr tæplega fjórðungur einstæðra foreldra við efnislegan skort og allt að þriðjungur þeirra getur ekki greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna. Um það bil helmingur einstæðra foreldra gæti ekki staðið undir óvæntum 80.000 kr. útgjöldum án þess að taka lán.

Staða innflytjenda mælist markvert verri en innfæddra Íslendinga þriðja árið í röð. Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar. Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttafélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er þriðja árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú.

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér. Samantekt á niðurstöðum má finna á bls 1.

Á mynd kynnir Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri, skýrslu Vörðu. Við borð sitja þau Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Finnbjörn A. Hermansson, forseti ASÍ.

Discussion about this post

  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Björguðu sex manns úr vatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mótmæli við Alþingi – ,,Vanhæf ríkisstjórn“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?