• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Úrbætur á 64 fjarskiptastöðvum með auknu varaafli eftir óveður í vetur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. júlí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Neyðarlínan vinnur nú að því að gera úrbætur á 64 fjarskiptastöðvum víða um land með auknu varaafli og að fjölga færanlegum vararafstöðvum. Þar af eru 36 fastar vararafstöðvar en annars staðar eru rafgeymar eða tenglar fyrir færanlegar rafstöðvar. Tilgangurinn er að tryggja rekstraröryggi í fjarskiptum eftir mikil óveður sem gengu yfir landið í vetur. 
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti nýverið að verkefnið fengi 125,5 milljóna kr. fjárveitingu á þessu ári á vegum fjarskiptasjóðs í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Fjárveitingarnar eru veittar á grundvelli fjárfestingaátaks stjórnvalda til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.„Óveðrið sem gekk yfir landið í vetur afhjúpaði marga veikleika í grundvallarkerfum okkar, rafmagnskerfinu og fjarskiptakerfinu. Sú vinna sem er hafin er hjá Neyðarlínunni með stuðningi fjarskiptasjóðs er mikilvægt skref í að tryggja örugg samskipti um allt land,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Samstarf við Mílu, fjarskiptafélögin og RÚV

Neyðarlínan og fjarskiptasjóður hafa átt í nánu samstarfi við Mílu, fjarskiptafélögin Nova, Símann og Sýn (Vodafone) og Ríkisútvarpið um úrbæturnar. Í lok síðasta árs var sett af stað vinna að frumkvæði Neyðarlínunnar að fara ofan í saumana á því hvað þyrfti að gera til að bæta rekstraröryggi fjarskiptastöðva og tryggja að almenningur geti kallað eftir aðstoð í neyðarnúmerið 112 í vá eins og skapaðist í óveðrum síðasta vetur.
„Út úr þessari vinnu voru lagðar fram tillögur sem yfirvöld ákváðu að styðjast við,“ segir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. „Sú vinna er komin á fullt og í fyrri áfanga verksins á þessu ári verður unnið að úrbótum á 64 stöðum víða um land. Stefnt er að því að hefja seinni áfanga verkefnisins á næsta ári sem mun ná til þess hluta landsins sem eftir verður að loknu fyrri áfanga,“ segir Þórhallur.
Í fyrsta áfanga verður unnið að verkefnum á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. formað er að 100 milljónir bætist við þetta verkefni á næsta ári. Þá verður hugað að varaaflstöðvum á Suðurlandi og suðvesturhorni landsins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
  • Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöldi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    96 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Tvö hundruð milljóna styrkur til innflytjenda

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?