• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skattar á laun hækkuðu mest hjá tekjulægsta fólkinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. júlí 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Skattbyrði launa hækkaði á síðustu áratugum, mest hjá tekjulægri hópum. Ástæðan fyrir því er að persónuafsláttur hækkaði ekki til jafns við laun. Þegar laun hækka umfram persónuafslátt eykst skattbyrði, nefnt skattskrið. Sem dæmi má nefna að skattbyrði lægstu launa á vinnumarkaði var 3,5% árið 1999. Skattbyrði lægstu launa var hæst 18% árið 2019. Þetta kemur fram í útreikningum ASÍ.

Fram að síðustu áramótum fylgdi persónuafsláttur verðlagi. Til að draga úr áhrifum skattskriðs var sú breyting gerð um síðustu áramót að viðmiðunarfjárhæðir (persónuafsláttur og þrepamörk) skattkerfisins fylgi framvegis breytingu á vísitölu neysluverðs að viðbættu mati um langtímaþróun framleiðni. Ætlunin var að koma böndum á skattskrið raunlauna og viðhalda svokallaðri sjálfvirkri sveiflujöfnun tekjuskattskerfisins. Er þar brugðist við gagnrýni ASÍ á hækkun á skattbyrði lægstu tekna undanfarna áratugi en – ein af kröfunum við gerð kjarasamninganna 2019 var að því fyrirkomulagi yrði breytt.

Í greinargerð fjárlagafrumvarps er miðað við 1% árlegan framleiðnivöxt. Það þýðir að persónuafsláttur og mörk skattþrepa hækka um 1% að raunvirði. Það er heldur lágt viðmið. Árleg meðalhækkun tekjuskattsstofnsins frá 1992 er 1,8% að raunvirði. Að óbreyttu mun nýja fyrirkomulagið því leiða til hækkunar á skattbyrði.

Með sjálfvirkri sveiflujöfnun er átt við þær breytingar sem eiga sér stað milli útgjalda og tekna hins opinbera við breyttar aðstæður á vinnumarkaði. Þegar atvinnulausum fjölgar, hækka útgjöld til atvinnuleysisbóta án nokkurra breytinga á fjárlögum. Að sama skapi lækka skattgreiðslur þegar hægir á efnahagsstarfsemi þar sem skattgreiðslur eru hlutfall tekna og neyslu. Umfang þessara áhrifa ræðst af því hvernig skatta- og tilfærslukerfi eru hönnuð. Þegar laun hækka umfram persónuafslátt er virkni sjálfvirkra sveiflujafnara meiri. Þá fer stærri hluti tekjuhækkunar í skattgreiðslur.

Hefðbundinn mælikvarði á virkni sveiflujafnara er hlutfall tekjuhækkunar sem fer í skattgreiðslur. Það hlutfall fer eftir því hversu mikið laun og persónuafsláttur hækka. Við útreikninga er miðað við þrjár mismunandi aðferðir við uppfærslu persónuafsláttar:

  1. Fyrra fyrirkomulag: persónuafsláttur hækkar til jafns við verðbólgu. Það fyrirkomulag var við lýði í nokkur ár fram að síðustu áramótum.
  2. Núverandi kerfi: persónuafsláttur hækkar um 1% að raunvirði.
  3. Ekkert skattskrið: persónuafsláttur hækkar til jafns við tekjur.

Virkni sjálfvirkra sveiflujafnara mælist mest í gamla fyrirkomulaginu. Við slíkt fyrirkomulag fer 36% af tekjuhækkun í tekjuskatt og um 64% fer til heimilanna, sjá meðfylgjandi mynd. Í núverandi fyrirkomulagi fer 30% af tekjuhækkun í tekjuskatt. Ef ekkert skattskrið væri og persónuafsláttur hækkar til jafns við laun færi 24% af tekjuhækkun í tekjuskatt. Ef einnig er miðað við virðisaukaskatt og tryggingagjald fer enn hærra hlutfall af tekjuhækkun í skattgreiðslur. Lesa má nánar um útreikninga í nýlegri grein í Vísbendingu (2022, 23. tölublað).

Niðurstöðurnar gefa til kynna að virkni sjálfvirkra sveiflujafnara minnki um 10-20% við að útrýma skattskriði með því að hækka persónuafslátt til jafns við laun. Sé ætlunin að stemma stigu við skattskriði ætti árleg raunhækkun viðmiðunarfjárhæða að vera meiri en 1%. Meðalhækkun tekjuskattstofns er 1,8% að raunvirði. Ef vöxtur verður viðlíka í framtíðinni leiðir núverandi fyrirkomulag til hækkunar á skattbyrði í framtíðinni.

Umræða
Share44Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?