• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Farage vill breyta einmenningskjördæmakerfi Bretlands

Farage vill breyta einmenningskjördæmakerfi Bretlands

Kosningakerfið í Bretlandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. júlí 2024
in Erlent, Fréttir
A A
0

Umbótaflokkur Nigel Farages „Reform UK“ fékk 14,3% atkvæða og er þriðji stærsti flokkur Bretlands á eftir Íhaldsflokknum með 23,7% og Verkamannaflokknum með 33,8%. Frjálslyndir demókratar fengu 12,2%, Grænir 6,8% og aðrir flokkar 9,2% samkvæmt CNN.

Gústaf Adolf Skúlason skrifar

Annað verður uppi á teningnum, þegar þingmannatölur flokkanna eru skoðaðar.

Verkamannaflokkurinn fær 412 þingmenn, Íhaldsflokkurinn 121, Umbótaflokkurinn 5 þingmenn, Frjálslyndir demókratar 71 þingmann, skoski þjóðarflokkurinn 9 þingmenn, Sinn Fein 7 þingmenn (verður stærsti flokkur Norður Írlands) og aðrir 24 þingsæti.

Kosningakerfið í Bretlandi

Samtals eru 650 einmenningskjördæmi í landinu og þarf 326 sæti til að fá þingmeirihluta, þannig að útkoman fyrir Verkamannaflokkinn með 33,8% fylgi kjósenda er, að flokkurinn fær 63% þingsæta og þar með einstaka yfirburðastöðu á breska þinginu. Íhaldsflokkurinn með 23,7% fylgi kjósenda fær 18% þingsæta, Umbótaflokkurinn með 14,3% atkvæða fær 0,8% þingsæta. Skoski þjóðernisflokkurinn með 2,5% atkvæða fær 9 þingsæti. Hér má sjá kosningaúrslitin hjá BBC.

Ef sama kerfi væri notað og er á Íslandi hefði Verkamannaflokkurinn fengið um 220 þingmenn, Íhaldsflokkurinn 154, Umbótaflokkurinn 92 þingmenn, Frjálslyndir demókratar 80 þingmenn, Grænir 44 þingmenn og 60 þingsæti dreifst á aðra flokka. Þá hefði Verkamannaflokkurinn verið langt frá þeirri stöðu sem breska kosningakerfið færir honum. Þá hefði flokkurinn þurft að reyna stjórnarmyndun með öðrum flokkum til að komast til valda. Einmenningskerfið virkar þannig að aðeins einn þingmaður er sendur á þing frá hverju kjördæmi og sá sem fær flest atkvæði nær kjöri (þarf ekki að vera yfir 50%).

Dræm kosningaþátttaka

Stóra spurningin er hvers vegna svo fáir Bretar ganga til kjörborðsins og greiða atkvæði. Hér að neðan má sjá kosningaþátttöku frá 1924 fram til dagsins í dag:

  • 1924: 77.0%
  • 1929: 76% (Kosið um kosningarétt kvenna)
  • 1931: 76.4%
  • 1935: 71.1%
  • 1945: 72.8%
  • 1950: 83.9%
  • 1970: 72.0%
  • 1979: 76.0%
  • 1987: 75.3%
  • 1992: 77.7%
  • 1997: 71.4%
  • 2001: 59.4% 
  • 2005: 61.4%
  • 2010: 65.1%
  • 2015: 66.2%
  • 2017: 68.8%
  • 2019: 67.3%
  • 2024: 59.9%

Að meðaltali hefur kosningaþátttakan verið um 70% en hefur í kosningunum núna eins og árið 2001 hrapað um tíu prósent í tæp 60%. Líklegast hafa innanhúsdeilur Íhaldsmanna ekki örvað þáttöku breskra kjósenda til að nota kosningaréttinn. 40% sem ákveða að nýta ekki kosningaréttinn segir sína sögu.

Gagnrýni Farage

Nigel Farage gagnrýnir kerfið í viðtali við The Independent:

„Trúið mér, viljinn til umbóta í kosningakerfinu verður mikill eftir þessar kosningar og það er eitt af þeim mörgu málum sem ég mun berjast fyrir í komandi kosningum. Ég get meira að segja hugsað mér að vinna með Frjálslyndum demókrötum að þessu máli.“

Farage er hress með mikinn stuðning flokksins og segir mikinn áhuga vera á stefnumálum flokksins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?