Sex manns voru handteknir í Hafnarfirði vegna gruns um ólöglega dvöl á Schengen svæðinu. Þeir voru vistaðir í þágu rannsóknar málsins. Helstu verkefni lögreglu á höfuðborgasvæðinu síðasta sólarhing er jafnframt þessi:
Tilkynnt var um eld í grilli í vesturborginni. Húsráðandi hafði slökkt eldinn með slökkvitæki áður en viðbragðsaðilar komu á vettvang.
Stjórnandi rafhlaupahjóls datt af hjólinu í austurborginni. Hann meiddist í lófum og komu sjúkraflutningsmenn á vettvang og gerðu að sárum hans.
Maður var handtekinn grunaður um líkamsárás í miðborginni. Hann var sakaður um að hafa ráðist á dyraverði skemmtistaðar. Maðurinn var óviðræðuhæfur vegna æsings og annarlegs ástands og var vistaður í fangageymslu þangað til hægt verður að taka af honum skýrslu.
Ökumaður húsbíls varð fyrir því óláni að aka utan í spegil bifreiðar fyrir framan lögreglustöðina við Hverfisgötu. Umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði samband við tjónþola og ritaði skýrslu vegna óhappsins.
Ökumaður var handtekinn vegna gruns um ölvun við akstur í austurborginni. Hann var látinn laus eftir blóðsýnatöku.
Ökumaður var handtekinn í austurborginni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var einnig kærður fyrir að aka sviptur ökuréttindum og fyrir vopnalagabrot. Hann var látinn laus eftir blóðsýnatöku.
Maður var handtekinn grunaður um líkamsárás gegn dyraverði skemmtistaðar. Hann var færður á lögreglustöðina við Hverfisgötu og sleppt eftir skýrslutöku.
Stöð 2
Ökumaður hópbifreiðar var stöðvaður við eftirlit í Hafnarfirði. Ökumaðurinn var m.a. kærður fyrir að aka án gildra ökuréttinda, fyrir að nota ekki ökuritaskífu eða ökuritakort, óheimila notkun nagladekkja og brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga.
Sex manns voru handteknir í Hafnarfirði vegna gruns um ólöglega dvöl á Schengen svæðinu. Þeir voru vistaðir í þágu rannsóknar málsins.
Stöð 3
Ökumaður var handtekinn í Kópavogi grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus eftir blóðsýnatöku.
Stöð 4
Ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur, en mældur hraði var 103 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 70 km/klst. Hann var einnig kærður fyrir að gefa ekki stefnumerki.
Ökumaður var handtekinn í Árbænum grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Hann var látinn laus eftir blóðsýnatöku.