• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Rigning í kortunum um helgina

ritstjorn by ritstjorn
6. september 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

 
Í dag stefnir í rólegheitaveður með vætu um mest allt land, einna síst þó á Vestfjörðum. Hiti 7 til 12 stig. Í nótt og á morgun dregur hins vegar til tíðinda þegar bætir verulega í vind, úrkomu og hita þegar lægð kemur upp að landinu með allhvassa og milda suðlæga átt með talsverðri rigningu um landið S- og V-vert. Fólk er sérstaklega hvatt til að huga að niðurföllum þar sem nýfallin laufblöðin geta auðveldlega stíflað þau og athuga einnig að það mun vaxa í ám á svæðinu. Með hjálp Hnjúkaþeysins gæti hitinn farið í 18 eða 19 stig á NA-verðu landinu. Annað kvöld dregur úr úrkomu og vindi allra vestast á landinu, en áfram verður úrhellisrigning S-lands fram á nótt.
Veðurhorfur á landinu
Breytileg átt 3-8 m/s og dálítil væta S-lands, en úrkomulítið um landið N-vert.
Vestlæg átt 3-8 þegar kemur fram á daginn og skúrir um mest allt land. Hægt vaxandi sunnanátt V-til annað kvöld. Hiti 7 til 13 stig yfir daginn.
Spá gerð: 05.09.2019 21:30. Gildir til: 07.09.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Sunnan 10-18 m/s og talsverð rigning um landið S- og V-vert, en úrkomuminna NA-til. Dregur úr vindi og vætu V-ast um kvöldið. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast N-lands.
Á sunnudag:
Minnkandi suðvestanátt, 5-10 m/s seinni partinn. Skýjað með köflum og skúrir V-til, en léttir til NA- og A-lands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast um landið NA-vert.
Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt með dálítilli vætu af og til, en skúrir sunnan heiða. Hiti 7 til 12 stig yfir daginn.
Á þriðjudag:
Vaxandi austlæg átt með rigningu, en úrkomuminna norðantil. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Norðlæg átt með vætu fyrir norðan og svalt í veðri, en bjart sunnan heiða og hiti upp í 13 stig.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt og skúri S-lands, en þurrt og svalt fyrir norðan.
Spá gerð: 05.09.2019 20:29. Gildir til: 12.09.2019 12:00.

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Árni Johnsen er látinn

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Viltu fá útborgað í evrum?

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?