• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

13 stiga frost í nótt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. nóvember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag er útlit fyrir hæga austlæga átt á landinu. Víðast hvar verður úrkomulaust og nokkuð bjart veður þegar kemur fram á daginn. Með suðurströndinni blæs hann aðeins, kringum 10 m/s og gengur á með éljum. Hitinn skríður yfir frostmarkið yfir daginn með suður- og vesturströndinni, annars er frost á landinu og nær það sums staðar tveggja stafa tölu. Þess má geta að kaldast í nótt mældist 13 stiga frost á Sauðárkróksflugvelli.
Á morgun er áfram fremur rólegur vindur í kortunum og áttin er suðlægari. Líkur eru á dálitlum éljum á víð og dreif, en norðaustantil á landinu verður léttskýjað. Hitinn breytist lítið til morguns.
Af ofansögðu má vera ljóst að næstu tveir dagar eru tíðindalitlir í veðrinu. Það breytist á föstudaginn, þá er útlit fyrir að gangi í hvassa suðaustan- og austanátt sunnantil á landinu. Með fylgir rigning eða slydda á láglendi, en snjókoma til fjalla. Á norðanverðu landinu verður hinsvegar þurrt og hægari vindur. Hitatölurnar þokast uppávið með hvassviðrinu.
Veðurhorfur á landinu
Hæg austlæg átt, úrkomulaust að kalla og birtir allvíða til með deginum. Austan 8-13 m/s og él syðst á landinu.
Suðlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun og dálítil él á víð og dreif, en léttskýjað norðaustanlands. Bætir í vind vestast annað kvöld.
Frostlaust að deginum við suður- og vesturströndina, annars frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan.
Spá gerð: 06.11.2019 05:32. Gildir til: 07.11.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og dálítil él á víð og dreif, en léttskýjað norðaustantil á landinu. Frost 0 til 10 stig, kaldast á Norðausturlandi, en frostlaust við suður- og vesturströndina að deginum.
Á föstudag:
Gengur í suðaustan og austan 15-23 á sunnanverðu landinu með rigningu eða slyddu á láglendi. Hiti 1 til 5 stig. Hægari vindur norðantil, þurrt og minnkandi frost.
Á laugardag:
Austan 10-18, hvassast á Suðausturlandi. Rigning eða slydda á láglendi sunnan- og austanlands, en þurrt á Norður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 5 stig.
Á sunnudag og mánudag:
Suðaustan- og austanátt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt norðanlands. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir minnkandi vind og styttir upp að mestu á landinu. Hiti kringum frostmark.
Spá gerð: 05.11.2019 21:34. Gildir til: 12.11.2019 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?