• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Öryrkjar eru meðal helstu skjólstæðinga hjálparstofnana''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. desember 2019
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

 

Verkalýðshreyfingin málsvari þeirra sem verst standa

Drífa Snædal formaður ASÍ

Í liðinni viku hafa stóru málin verið til umfjöllunar í hreyfingunni og er farið að sjá til lands í mörgum umbótamálum sem lögð var áhersla á í aðdraganda kjarasamninganna í vor þó vinnan sækist hægar en æskilegt væri. Á miðstjórnarfundi ASÍ á miðvikudaginn voru til umfjöllunar lífeyrismál og húsnæðismál og ljóst að það þarf að vanda verulega til verka og gæta þess að breytinga sem standa fyrir dyrum verði raunveruleg framfaraskref fyrir allan almenning. Inn í lífeyrismálin fléttast að sjálfsögðu almannatryggingar og því verður þetta alltaf umræða um grundvallaratriði.
Hvernig nýtist samtrygging í gegnum lífeyrissjóði og almannatryggingar, hverjir njóta og hverjir borga. Þó að verkalýðshreyfingin sé samtök vinnandi fólks þá er ljóst að samfélagið allt er undir og oft eru skilin á milli þess að vera á vinnumarkaði eða ekki frekar fljótandi. Það er því eitt af stærstu verkefnum samfélagsins í dag að tryggja að fólk sem missir starfsgetuna sé ekki dæmt til fátæktar. Ástandið verður augljóst og átakanlegt rétt fyrir jól þar sem öryrkjar eru meðal helstu skjólstæðinga hjálparstofnana, hópur sem oft og tíðum er ósýnilegur á öðrum tímum.
Verkefni hreyfingarinnar eru iðulega að standa vörð um þá sem verst hafa kjörin og ljá þeim rödd sem hafa ekki aðgang að hljóðnemanum stöðu sinnar vegna. Einn þessara hópa eru erlendir starfsmenn á íslenskum vinnumarkaði og í vikunni féll dómur þar sem sum ummæli sérfræðings á skrifstofu ASÍ voru dæmd dauð og ómerk en önnur ekki. Til að taka af allan vafa þá breytir þessi dómur engu í starfsemi okkar vinnustaðaeftirlits eða þeirri staðfestu starfsfólks og kjörinna fulltrúa hreyfingarinnar að enduróma veruleika okkar félaga og tala skýrt þeirra máli.
Njótið helgarinnar, Drífa
https://gamli.frettatiminn.is/2019/12/06/rikisstjornin-styrkir-islensku-operuna/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?