Samtals voru 297 ökumenn myndaðir í hraðamælingu lögreglunnar. Vöktun lögreglunnar á er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Brot 133 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi og 164 ökumanna á Sæbraut.
Brot 133 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt, við Viðarhöfða. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.344 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 118.
Brot 164 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 2. mars til mánudagsins 6. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á fjórum sólarhringum fóru 19.242 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 111. Sex ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.